Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, desember 6

Núna er lítið annað gert en að læra. Var að koma af heim rétt í þessu. Er búinn að planta mér í eina stofuna í verkfræðibyggingunni. Tók reyndar létta æfingu í dag annars hefur þetta bara verið lærdómur. Var að lesa eitthvað í listasögu. Þetta er nú meira kjaftæðið. Tíminn byrjaði allt í lagi en núna er þetta orðið frekar súrt. Var að lesa einhverja bók um póst-módernisma. Eftir 10 blaðsíður þar sem ég skildi ekki annaðhvort orð þá ákvað ég að loka bara bókinni. Talaði við nokkra sem eru með mér í tímanum. Þeir eru Kanar en skildu þetta samt ekki þannig að kannski er það ekki svo skrýtið að ég nái þessu ekki. Reyndi að fletta upp á þessu orði á íslenskum vefsíðum og fann einhverjar útskýringar á þessu hugtaki en er þó litlu nær. Fór því bara í eitthvað sem ég skil, þ.e. verkfræði og eitthvað henni tengt. Gott að maður geymdi nammið þangað til síðast.

posted at 11:30 e.h. by Victor

|

föstudagur, desember 5

Það er ekkert búið að vera neitt rosalega hlýtt hér í Durham síðustu daga. Rétt í kringum frostmark. Það hefur samt ekki snjóað sem betur fer því að núna er skólinn búinn þannig að maður græðir ekkert á því.
Ég var rétt í þessu að koma frá Greensboro úr kvöldmat. Þetta var bara nokkuð vel heppnað, kannski full langt. Hún var búin skreyta allt húsið með jólaskrauti fyrir okkur og búin að hrista rykið að íslenska fánanum. Þarna var Íslendingur sem heitir Róbert og er hann í UNC Chapel Hill. Hann er víst á síðasta ári og hefur ekkert verið að láta heyra í sér fram til þessa. Hann var furðu mikill Íslendingur í sér miðað við að hann hefur búið úti í Bandaríkjunum síðan hann var sex ára.
Þetta lið sem er að bjóða okkur að gista hjá sér í New York er víst nokkuð vel sett af peningum. Gaf miða á David Bowie tónleika í Madison Square Garden. Ekki að ég sé neinn rosa David Bowie aðdáandi en það verður eflaust gaman að fara í Madison Square Garden. Mér skilst líka að við séum ekkert að fara að sitja með almúganum. Annars segir Þóra að hann sé snillingur og ætlar að láta mig hlusta á hann núna næstu daga. Við keyptum allavegana einhverjar bækur um Ísland á netinu í gær og Independent People eftir Dóra Kornflex og ætlum að gefa þeim til að þakka fyrir okkur.

posted at 11:01 e.h. by Victor

|

fimmtudagur, desember 4

Ég mun reyna í framtíðinni að fækka stafsetningarvillum á þessari síðu sökum fjölda ábendinga. Ég vil samt minna fólk á að ég man kannski ekki lengur allar reglurnar. Maður er orðinn svo mikill Kani.
Síðasti skóladagurinn var í dag, þarf samt að skila lokaverkefni fyrir einn tímann á morgun þannig að það er enn nóg að gera. Fyrirlesturinn í dag gekk bara nokkuð vel. Hann fjallaði meðal annars um hvernig maður á að sniðganga Icelandair.
Annað kvöld er síðan Íslendingakvöldmatur í Greensboro. Þar er íslensk kona, Sólveg Weinel, sem býður mér, Þóru, Agli og Rakel í mat. Kannski ekki hentugasti tíminn að fara til hennar núna en þetta var eini tíminn sem allir komust. Einnig er víst einhver íslenskur strákur í Chapel Hill sem ætlar að mæta. Þetta gæti bara orðið ágætis kvöldstund. Vonandi góður matur allavegana.

posted at 11:45 f.h. by Victor

|

miðvikudagur, desember 3

Ég vil byrja að koma því á framfæri að það eru 9 dagar í próflok og 14 dagar í heimkomu. Bara svo það sé á hreinu. Ég fór í kvöldmatinn hjá liðinu í gær. Þetta var nú meira vælið. Kaninn er svo mikill smjaðrari að það er með ólíkindum. Þarna voru 5 senior-ar að kveðja og allir þurftu að halda ræðu. 4 af þeim voru við það að fara að grenja eða grenjandi í lokin og allir þökkuðu þjálfaranum fyrir allt. Þessir sömu menn þola hann ekki, frekar en restin af liðinu, og baktala hann öllum stundum. Ég breytti til og sagði ekki orð.
Síðan þarf ég að fara að drífa mig að undirbúa fyrirlestur fyrir morgundaginn. Það verður nú eitthvað skrautlegt hvernig ég fylli upp í þær 5 mínútur sem hann á að vera.
Vil enda á því að óska 2 afmælsibörnum til hamingju með daginn. Það er hún Sæunn úr vinnunni sem er 24 í dag og síðan er það gamli vinurinn Jói Biggi sem er 22 ára í dag (maður man þetta ennþá).

posted at 9:34 f.h. by Victor

|

mánudagur, desember 1

Það hlaut að koma að því. Eftir nokkra skemmtilega daga koma ansi margir leiðinlegir. Mér finnst ég vera að drukkna í vinnu þessa dagana. Klukkan er núna 1 og ég var að koma af bókasafninu. Próf eftir 8 tíma og svo aftur á bókasafnið. Þetta er stuð. Þarf að mæta í kvöldmat með liðinu á morgun, ég endurtek, ég þarf að mæta. Verð síðan kominn heim eftir 15 daga.

posted at 10:04 e.h. by Victor

|

sunnudagur, nóvember 30

Jæja, þá er maður loksins kominn aftur til Durham. Kíkti til Clemson yfir Thanksgiving. Ég vill byrja á því að þakka Silju og Vigni fyrir að hýsa okkur og þakka hinum krökkunum fyrir góða skemmtun (Bjössi, Egill, Eyja og Þóra) Hægt er að skoða myndir úr ferðinni með því að smella á Myndir hér til hliðar. Þetta var mjög góð ferð og er nú þegar farið að plana næstu Thanksgiving. Kalkúnninn heppnaðist mjög vel eins og allt annað og við fengum öll að hitta hinn heimsfræga Jarred.

posted at 8:56 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast