Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, janúar 17

Það voru bæði góðar og slæmar fréttir sem ég fékk í morgun þegar ég kíkti á netið. Jú, Kalli vann Idol með yfirburðum en hins vegar þurftu Manchester United að asnast til þess að tapa fyrir Wolves. Það er alltaf jafn pirrandi að vakna og sjá einhverja svona vitleysu.
Kvöldið í gær var vel heppnað. Ég var í 16 manna hópi og var þetta allt mjög fínt lið. Einnig var maturinn og þjónustan góð. Nige og Brai voru rausnarlegir í gær og enda með nóg af punktum inni á kortinu svona í byrjun árs. Það var hver hvítvínsflaskan á fætur annari sem rann ofan í þá en það var bara stuð í kringum þá. Þjónarnir fíluðu þá einnig enda gáfu þeir þeim alltof mikið þjórfé.
Ég fór síðan í fótbolta í dag með fullt af útlendingum. Einn gaur frá Sameinuðu Arabísku furstadæmunum, einn frá Austurríki, tveir Frakkar og svo tveir Íslendingar. Flestir voru reyndar ekkert alltof góðir í fótbolta en það var gaman samt. Síðan tók ég íbúðina aldeilis í gegn og er glansandi hérna inni núna. Með öðrum orðum bara nokkuð góður laugardagur.

posted at 8:31 e.h. by Victor

|

föstudagur, janúar 16

Það er kominn föstudagur og vikan senn á enda. Núna tekur við löng helgi þar sem að mánudagurinn er frídagur (Martin Luther King jr. Memorial). Þar sem hálsbólgan er farin þá er maður fær í flestan sjó og er stefnan sett á að liggja upp í sófa og spila XBox sem mest, sem sagt algjör snilld. Það passar alveg að hanga inni þessa helgi enda heldur napurt í veðri, rétt yfir frostmarki. Annars er stefnan sett á að kíkja á Washington Duke Inn í kvöld og borða góðan kvöldmat í góðra vina hópi. Það er svona verið að hrista mannskapinn saman eftir jólafríið.
Mér líst nú bara nokkuð vel á fögin sem ég er í þessa önnina, allavega 2 af þeim, en það eru einu fögin sem ég hef mætt oftar en einu sinni í tíma. Hin fögin eru örugglega líka fín svona þegar maður kemst inn í námsefnið.
Annars ef ég mest fúll yfir því að missa af lokakvöldinu af Idol. Ég ætla bara að vona að Kalli frændi vinni þetta enda yrði allt annað skandall.

posted at 11:31 f.h. by Victor

|

fimmtudagur, janúar 15

Þá er annasömum degi loksins lokið. Meiri hluti dagsins fór í að koma Bigga til Virginia Tech. Það var alveg 8 tíma ævintýri. Sem betur fer lánaði Kolla bílinn sinn enda hefði það verið full gróft að ætlast af Geo-inum að meika þetta.
Biggi var orðinn svona frekar stressaður og leist um tíma ekkert á þetta enda allt öðruvísi en hann bjóst við. Þegar hann heyrði að hann yrði í liltum bæ uppi í fjöllum Virginíu þá hefur hann eflaust ímyndað sér svona lítin sætan austurískan bæ í Ölpunum en það var ekki svo. Suðurríki Bandaríkjanna bjóða ekki uppá svoleiðis heldur dreifða hraðbrautarbyggð með engum kjarna. Campus-inn hjá skólanum hans var samt mjög fallegur og einnig var mjög skemmtilegt að keyra í fjöllunum þar sem útsýnið var nokkuð magnað.
Þegar ég komst loksins heim þurfti maður að gera sig tilbúinn enda boðið í kvöldmat með liði sem finnst það ekkert mál að gefa styrki upp á 40.000 dollara á ári svo að einhverjir ókunnugir getir stundað nám við skólann. Ég er þeim að sjálfsögðu mjög þakklátur. Ég sat til borðs með þeim sem styrkir mig, Herra Bill Baxter. Ég hugsa að það sjái lítið á buddunni hjá honum þó að hann sé að borga námið fyrir mig enda er fjölskyldufyrirtækið hans með um 13.000 starfsmenn. Eftir matinn var okkur svo boðið á körfuboltaleik þar sem Duke malaði nágrannana úr N.C. State. Það var hörkustemmning í höllinni enda troðfullt og komust færri að en vildu.

posted at 11:35 e.h. by Victor

|

miðvikudagur, janúar 14

Ég og Biggi kíktum í golf í dag. Það var algjör snilld. Það eru komnar myndir af þessu hér í myndaalbúminu. Það var íslenskt sumarveður, 10 stiga hiti, sól og blíða. Þetta gekk svona upp og ofan. Ég byrjaði vel en síðan fór þetta allt í rugl og ég held að ég hafi jafnvel náð að beygla eina kylfuna þegar ég dúndraði henni í tré. Svo sem ekki í fyrsta skipti sem það gerist. Þegar þarna var komið var ég orðinn frekar fúll í skapinu. Ég róaðist þó aðeins í lokin og þetta fór að ganga aðeins betur. Ekkert meira merkilegt gerðist í dag en mér líður miklu betur í dag og ætli maður fari ekki að kíkja á æfingu bráðum, komin tími til.

posted at 4:01 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, janúar 13

Það varð ekkert úr golfinu í dag. Mér leið ekki nógu vel í morgun þannig að við ákváðum að bíða með það. Ætlum þess í stað að reyna að fara á morgun. Verst að Duke er með hærra gjald á miðvikudögum heldur en á mánu- og þriðjudögum. Ég fór síðan og talaði við lækninn í dag og hann sagði að þetta væri ekkert slæmt, aðallega væl í mér. Ég vildi samt vera viss því að flensan hérna úti er búin að fara illa með marga og einhverjir hafa dáið. Það er búið að vera gott veður hérna í Durham, 14 stiga hiti og sól. Vonandi helst það bara og fer síðan hækkandi. Ég er búinn að setja nýjar myndir inn á netið.

posted at 6:33 e.h. by Victor

|

mánudagur, janúar 12

Jæja, ég er þá kominn aftur út til Durham eftir jólafríið og mun nú hefja að skrifa aftur hérna. Það er eins og maður hafi ekkert farið. Það var gaman heima og ég mun bráðum koma með fullt af myndum úr jólafríinu og frá New York ferðinni. Flugin voru löng og leiðinleg ef við því var alveg að búast. Ég flaug samt með Bigga og Þóru þannig að það gerði þetta aðeins skárra. Biggi er einmitt hérna hjá mér núna og ætlum við að kíkja í golf á morgun. Hann verður hjá mér núna fyrstu vikuna en fer síðan um helgina upp til Virginu þar sem skólinn hans er. Ég missti ekki af miklu þó að ég hafi sleppt fyrstu 3 skóladögunum, þeir hafa allir bara farið í kynningu á efninu en núna er allt að fara á fullt. Ég virðist þó núna loksins vera að fá flensuna sem öll fjölskyldan var með yfir jólin. Er með hálsbólgu og kvef en þetta verður vonandi allt í lagi.

posted at 7:37 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast