Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, janúar 24

Ég kíkti í tennis í dag. Ég skal alveg viðurkenna að ég kann lítið fyrir mér í þeirri íþrótt. Þetta byrjaði mjög illa en ég var svona farinn að getað hitt aðeins á boltann í lokin enda hafði ég Dan mér til halds og traust. Hann reyndi hvað hann gat að leiðbeina mér. Þóra bættist síðan við í hópinn og stóð sig bara með ágætum. Við kíktum síðan í mallið seinni part dags. Þar ætluðum við að fá okkur eitthvað að borða enda mikið af fínum stöðum þar. Það var hvergi minna en 2 tíma bið og allt upp í 3 tíma bið þannig að við enduðum að fá okkur einhvern viðbjóðslega asískan skyndibitamat. Þetta átti að vera kjúklingur sem ég fékk mér en það var erfitt að finna kjúklinginn inní allri fitunni eftir djúpsteikinguna. Ég held að ég sé þar með búinn að setja asískan mat aftur á bannlista hjá mér eftir þessa reynslu. Núna er komið laugardagskvöld hér í Durham og eftir því sem ég best veit þá er ekki mikið um að vera á "skemmtistöðum" bæjarins þannig að ég held að ég verði bara að spila þennan leik fram eftir kvöldi nema eitthvað rætist úr þessu.

posted at 6:31 e.h. by Victor

|

föstudagur, janúar 23

Núna er komið föstudagskvöld og skólavikan á enda. Það varð ekkert úr þessari ferð til Greensboro og verður það bara að bíða betri tíma. Hins vegar stendur jafnvel til að smala saman Íslendingunum hérna í nágrenninu næstu helgi. Það er alveg 8 eða 9 ungir krakkar sem við vitum af og gæti það orðið helvíti gaman ef þetta tekst en þetta mun allt koma í ljós í vikunni. Allt í vinnslu. Þar sem það varð ekkert úr ferðinni til Greensboro kíkti ég í bíó ásamt Þóru og Dan á Last Samurai með Tom Cruise. Fín mynd, svolítið löng. Best að fara að koma sér í háttin núna.

posted at 11:44 e.h. by Victor

|

fimmtudagur, janúar 22

Frábært veður í dag fyrir Íslendinga. 14 stiga hiti, sól og logn. Þetta gerist ekki mikið betra. Ég þurfti bara að fara í einn tíma í dag þannig að þetta var ekki erfiður dagur. Við héldum áfram í einhverjum fitness testum í dag. Núna var það píptestið skemmtilega, sprett, spretthlaup og stökkpróf. Þessu lýkur svo á morgun með hnébeygju og einhverju fleira. Ég hef verið að standa mig svona þokkalega en maður verður náttúrlega að vera svolítið sniðugur og keyra sig ekki út þar sem næst þegar þessi test verða þá þarf maður að sýna smá bætingu.
Ég er síðan loksins búinn að finna kírópraktor hérna í Durham. Ég kíki til hans á mánudaginn og ætlar hann að reyna að hnykkja mann eitthvað til. Tryggingarnar sem ég kaupi hérna úti eru loksins að gera eitthvað fyrir mann. Þær munu borga stóran hluta af kostnaðinum þannig að þetta kemur bara helvíti vel út.
Á morgun er síðan stefnan sett að kíkja í heimsókn til Greensboro til Egils Atla og Rakelar. Ágætt að kíkja snemma á önninni þegar það er ekki of mikið að gera.

posted at 5:55 e.h. by Victor

|

miðvikudagur, janúar 21

Það voru fleiri fitness test í dag. Núna vorum við í lyftingasalnum og á morgun er síðan fleiri hlaupapróf, meðal annars píptest og sprettir. Sem sagt mikið stuð framundan. Annars er stefnan að byrja að æfa úti í næstu viku. Það er verið að klára að setja niður nýtt gervigras og við byrjum fyrsta mánuðinn á því. Vonandi förum við síðan að komast á gras fljótlega eftir það.
Ég fór síðan á stúfana í dag með myndavélina mína í farteskinu. Ég var nefnilega búinn að tala um að taka myndir af tjöldunum og setja hér á netið og því er nú hægt að sjá þær bæði hér og hér. Það á síðan allur grasbalinn eftir að fyllast af tjöldum þegar nær dregur stórleik (22.feb) og síðan myndast líka nokkura tuga röð síðasta sólarhringinn af fólki sem ætlar að komast inn. En ég verð nú með myndir af þessu öllu þegar þar að kemur. Víst ég var á röltinu með myndavélina þá tók ég einnig mynd af kirkjunni okkar hér í Duke.

posted at 6:03 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, janúar 20

Duke er í dag bæði á toppnum í kvenna og karla körfubolta. Ekki slæmt það. Liðið hérna er náttúrulega ruglað. Það er búið að vera að tjalda fyrir utan körfuboltahöllina síðan ég kom tilbaka og ég var að komast að því að leikurinn sem flestir eru að bíða eftir (gegn UNC) er ekki fyrr en 22. febrúar. Það er brjálæði. Það er skítkalt hérna á nóttinni. Núna er klukkan rétt um 10 leytið og það er mínus 5 gráður. Krakkarnir þurfa samt ekki að gista þarna hverja nótt. Það er eitthvað skiptikerfi á þessu. Þau eru kannski 10 saman með tjald og það þurfa alltaf að vera 2 á staðnum. Leikurinn milli Duke og UNC er einn stærsti leikur ársins í háskóla-körfunni en þetta er kannski full gróft enda eru þetta aðallega fyrsta árs nemar sem dettur þetta í hug (damn freshmen). Ég mun fara og taka mynd af þessu á næstu dögum til þess að sýna fólki heima.
Ég fór síðan létt í gegnum þetta Cooper test. Ég var svo sem ekkert að slá nein met. Fór þetta á 11:50 enda eina krafan að við værum undir 12 mínútum. Ég fór síðan í píanó tíma í dag. Það er svolítið uppörvandi að fara í þennan tíma þar sem þetta er byrjendatími og ég er lang bestur. Við erum 5 saman og allir spila smá og hinir þurfa að hlusta. Hins vegar getur stundum verið svolítið pirrandi að hlusta á hina ströggla en maður þarf að sýna þeim smá þolinmæði, maður þurfti nú sjálfur að fara í gegnum þetta allt.
Það er skoðanakönnun í gangi hérna til hliðar. Endilega kjósið.

posted at 7:08 e.h. by Victor

|

mánudagur, janúar 19

Jæja, þá er þessari löngu helgi lokið. Mér tókst nú ekki að koma miklu í verk lærdómslega enda kannski ekki nógu mikil pressa á manni svona í byrjun skólaárs til þess að maður drífi sig í þessu. Ég fór reyndar út í búð í dag og verlsaði ansi vel inn. Núna á nefnilega að koma tímabil þar sem eldamennskan verður í fyrirrúmi. Ég veit á það eru margir efasemdamenn heima sem halda að maður nenni því ekki en ég ætla nú að afsanna það.
Ási Haralds, yfirflokksstjóri, hringdi síðan í mig dag. Hann er fluttur til Charlotte og vill endilega fara að halda flokksstjóra partý. Pétur, sem var einnig flokksstjóri er einnig hérna í grenndinni þannig að það gæti alveg orðið eitthvað úr þessu. Við vorum jafnvel að spá í að halda golfmót vinnuskólans hér úti. Kannski að þetta verði bara opið mót og þá er hægt að bjóða Agli með. Annars fer nú að koma að því að maður ákveði hvað maður eigi að gera í Spring Break. Fullt af möguleikum. Kannski ég haldi skoðanakönnun hér á síðunni til þess að fá skoðun fólks á þessu.
Svo við snúum okkur yfir í pólítíkina þá tókst Howard Dean að skíttapa í Iowa í prófkjöri Demókrata. Þetta er algjört klúður hjá honum en reyndar eru alveg steiktar reglur í þessu fylki og skil ég þær engan vegin. Hins vegar sló Norður-Karólínubúinn John Edwards í gegn og náði öðru sætinu á eftir John Kerry. Mér er svo sem alveg sama hver vinnur þetta svo lengi sem sigurvegarinn vinni Bush. Best að hætta pólitísku tali núna enda gætu þeir hent manni úr landi (jú, þeir geta örugglega fundið eitthvað í Patriot Act sem gefur þeim rétt til þess).

posted at 10:41 e.h. by Victor

|

sunnudagur, janúar 18

Ekki margt spennandi gerðist í dag nema það að ég fór og spilaði á píanó. Ég er nefnilega að taka píanó tíma þessa önnina. Ég enntist ótrúlega lengi miðað við hvað það er langt síðan maður hefur virkilega æft sig eitthvað að ráði. Má nánast segja að maður sé að koma sér aftur af stað eftir þriggja og hálfs árs pásu. Já, það er orðið svo langt síðan, ég trúi því varla. Maður er nú svona frekar ryðgaður en það mun vonandi batna á næstu dögum. Ég kíkti einnig í gymið í dag. Það eru nefnilega hlaupapróf í næstu viku hjá liðinu og eins gott að standa sig. Cooper test á þriðjudaginn. Það eru 3.2 kílómetrar á 12 mínútum. Síðan bauð Þóra mér og Dan í pizzu og fór allt kvöldið í chill þar.
Jú, ég náði síðan loksins að setja mynd á forsíðuna hérna hjá mér og náði þar með að fela auglýsinguna sem var þar þannig að núna er þetta orðið meira eins og alvöru heimasíða. Ég þarf reyndar að finna einhverja svalari mynd við tækifæri. Jæja, ég ætla að reyna að spila smá Grand Theft Auto áður en ég fer að sofa.

posted at 10:12 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast