
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
laugardagur, janúar 31
Það munar næstum því engu hvar maður býr orðið í dag. Ég vakna og tala við fólkið heima á msn. Síðan kíki ég í skólann, svo á æfingu og kem síðan heim. Fæ mér eitthvað að borða meðan ég horfi á fréttirnar á netinu og hef síðan Popptívi á meðan ég læri. Eini munurinn er líklega að maturinn er ekki jafn góður. Ef maður fengi laugardagssteikina þá væri nánast engin munur. Nóg af rugli, en þá hef ég reyndar ekkert annað að tala um. Það er verið að gera við gervigrasið hjá okkur þannig að við komust ekkert í fótbolta. Fengum þess í stað bara að hlaupa, hörkustuð. Það er engin innanhúsaðstaða hér að viti enda kannski ekki góð fjárfesting í því sökum þess að það yrði ekki notað nema nokkrar vikur á ári. Vegna þess að það snjóaði þá eru vellirnir allir frekar slappir. Þjálfari Rennie er að fara til Brasilíu í næstu viku þannig að það verður góð vika. Pottþétt að skólinn borgar fyrir ferðina, þykist eflaust vera að fara að finna leikmenn og sjá hvernig önnur lið æfa. Hann fór einmitt fyrir ári til Manchester United og kom til baka og kenndi okkur reitarbolta. Ég hefði einmitt getað kennt honum það fyrir frítt.
fimmtudagur, janúar 29
Þá er allt komið í gang aftur og lífið farið að ganga sinn vanagang aftur. Þetta verður reyndar stutt skólavika en núna um helgina ætla nokkrir Íslendingar að kíkja hingað. Það verður væntanlega Egill Atla, yfirflokksstjórinn Ási Haralds, Rakel Loga og jafnvel strákur hér úr Chapel Hill sem heitir Róbert. Edda Garðars, vinkona Þóru, kom einmitt hingað í kvöld og var ég að koma úr bíltúr til Raleigh að sækja hana. Hún ákvað að taka lestina hingað en til þess að sýna hversu öflugar lestasamgöngur eru hérna tók það hana þrjá og hálfan tíma að komast frá Richmond til Raleigh en þetta eru rétt rúmlega 2 tíma akstur. Ég skil reyndar ekki afhverju lestasamgöngur eru ekki öflugri, sérstaklega núna þar sem flugsamgöngur eru ekkert voðalega skemmtilegar (reyndar ótrúlega leiðinlegar) þá væri almennileg hraðlest til Washington mun skemmtilegri kostur heldur en að fljúga. Við fengum leikjadagskrána fyrir vorið í dag. Við komum til með að spila 5 æfingaleiki í vor. Einn af þeim er gegn Agli og félögum í Greensboro. Það verður gaman að vinna hann, svona eins og maður gerir alltaf sama hvort það sé á æfingum eða í leikjum. Hann á reyndar aldrei eftir að viðurkenna þetta en samt mikið til í þessu. Jæja, ég ætla að reyna að fara að læra aðeins áður en ég fer að sofa.
þriðjudagur, janúar 27
Jæja, þá er könnuninni um hvert skal fara í Spring Break lokið. Henni lauk með því að Flórída og Cancun, Mexíkó, fengu flest atkvæði og verða því núna farið í það að finna út hvor staðurinn sé meira spennandi. Það verður síðan tilkynnt hvert hér hver niðurstaðan verður. Ég vil þakka öllum sem tóku þátt nema kannski þeim sem kusu að ég skildi ekki fara neitt, ekki vinsælt. Það yrði alveg sorglegt ef að það yrði lokaniðurstaðan. Það var enginn skóli í dag sökum ofsaveðurs en á morgun er stefnan að hefja kennslu aftur. Þessu stutta fríi er þar með lokið og tekur alvaran nú við. Annars mun þetta eflaust allt koma í bakið á manni því að þeir munu líklega enda á því að bæta þessum dögum við í lok skólaárs.
mánudagur, janúar 26
Enginn skóli í dag og það er meira að segja búið að fresta skólanum á morgun líka. Þetta er algjör snilld. Bærinn er reyndar eins og draugabær enda allt lokað. Ekki einu sinni hægt að ná sér í spólu. Núna er bara spurningin hvort að það náist að fá þriðja frídaginn á miðvikudaginn. Ekkert voðalega líklegt reyndar. Ég kíkti samt á bókasafnið í dag og náði nokkrum klukkutímum þar í lærdóm. Það er það eina gagnlega sem kom út úr þessum degi.
sunnudagur, janúar 25
Það snjóaði í dag. Þetta eru ótrúleg tíðindi hérna í Durham. Ég hafði heyrt að það snjóaði bara hér einu sinni á fjögurra ára fresti en þetta er annað árið í röð sem það snjóar hérna hjá mér. Það er að sjálfsögðu búið að loka öllu og það verður enginn skóli á morgun. Sem betur fer á ég eitthvað af mat í ískápnum en þetta á nú að vera búið seinni partinn á morgun. Fyrirsagnirnar í veðurfréttunum voru svona: WINTER STORM WARNING IN EFFECT TODAY THROUGH MIDNIGHT TONIGHT og þar sem Kaninn er svona frekar mikið í hræðsluáróðrinum þá gat maður lesið þetta aðeins neðar í greininni: Any Travel Is Strongly Discouraged. If You Leave The Safety Of Being Indoors, You Are Putting Your Life At Risk. Conditions Can Deteriorate Rapidly In Winter Weather Situations, Slow Down And Allow Extra Time When Traveling. Practice Your Winter Safety Rules, Keep An Extra Flashlight, Food, And Water In Your Car In Case Of Emergency. Það var samt gaman að labba í gegnum campusinn, allt hvítt og fallegt, og auðvitað var fullt af fólki eins og ég með myndavélina á lofti til þess að ná myndum af þessu öllu. Það eru náttúrulega krakkar hér sem hafa aldrei séð snjó áður. Jæja, það verður allavegana bara rólegur dagur á morgun. Best að reyna að læra eitthvað aðeins núna. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|