Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, febrúar 14

Mér líst ekkert á gang mála hjá mínu liði Manchester þessa dagana. Þeir unnu jú í dag en samt búnir að fá á sig 8 mörk í síðustu þremur leikjum. Það er ekki alveg nógu gott. Það er svona þegar menn gleyma að mæta í lyfjapróf og fá þá lengra bann en þeir sem mæta í lyfjaprófin og falla á þeim. Þetta er eitthvað samsæri.
Þetta er annars búin að vera frekar róleg helgi. Kíkti aðeins út í gær. Það var persískt kvöld á einum staðnum hér. Þar voru komnir saman fullt af útlendingum sem eru hérna í Duke. Það er fullt af fólki hér frá þessu svæði en Duke fer í ferðir til þess að fá fólk þaðan til þess að koma hingað. Ég stóð svona frekar mikið upp úr með ljósa hárið þarna en þetta var bara nokkuð skemmtilegt kvöld. Staðurinn var bara nokkuð nettur, sérstaklega á Durham mælikvarða.
Við byrjum síðan að spila næstu helgi. Förum á ströndina í Wilmington (heimabær Jordan´s) og verðum þar yfir helgina og spilum einn leik þar. Kannski ekki alveg rétti tíminn að fara í strandbæ um miðjan febrúar en þetta gæti samt verið ágætis ferð.

posted at 7:08 e.h. by Victor

|

föstudagur, febrúar 13

Það var sem mig grunaði. Kallinn lærði ekkert stórmerkilegt í Brasilíu. Hann las einhverja tölfræði fyrir okkur af blaði. Leikurinn er 30% líkamlegur, 24% tæknilegt og eitthvað svoleiðis. Annað var það nú ekki. Hélt fund og allt til að segja okkur frá ferðinni. En maður á kannski að gefa honum tækifæri. Sjáum til hvað gerist á næstu vikum. Annars held ég að hann sé að fara til Real Madrid í næsta mánuði að ''læra'' eitthvað nýtt.
Ég komst að því í gær að það hefur eitthvað merkilegt gerst í Norður-Karólínu. Wright bræður eru víst héðan og þ.a.l var fyrstu flugvélinni flogið héðan. Það er nú ekkert lítið afrek að Norður-Karólínubúum. Vikan er síðan loks á enda. Þetta er búin að vera ein af annasömustu vikum skólaársins þannig að helgin verður kærkomin.
Ef ykkur leiðist þá getið þið smellt á þessa síðu hér. Þarna hægt að eyða tímanum í púsluspili (daily jigsaw), mjög afslappandi og þægilegt.

posted at 12:36 f.h. by Victor

|

miðvikudagur, febrúar 11

Eftir frekar rólega dag fóru hlutirnar loks að gerast eftir kvöldmat. Ég vil ekki segja of mikið fyrr en hlutirnir eru komnir á hreint en fyrir forvitna þá bendi ég á þessa síðu. Ég kem með nánari skýringu á þessu öllu seinna.

posted at 11:17 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, febrúar 10

Ég fór eins og til stóð í barnaskóla hér í Durham að lesa fyrir litla krakka. Ætli þeir hafi ekki verið 8 ára gamlir eða svo. Þetta var bara nokkuð skemmtilegt. Ég las fyrir þau einhverja stutta sögu og sat svo fyrir svörum. Spurningarnar voru flestar um Ísland og fótbolta þannig að það var lítið mál. Þeim fannst Ísland svolítið mikið langt í burtu. Ég fór svo seinna um daginn og talaði við ráðgjafann minn. Hann vill endilega að ég haldi áfram í Duke eftir útskrift og taki masterinn hér eða jafnvel doktorinn. Það þarf að ræða fjárhagshliðina á þessu máli aðeins betur en hann vildi meina að það væri eitthvað í boði þannig að hver veit hvað gerist? Kannski er eitthvað lengra í að maður kom heim heldur en maður hélt í upphafi.
Síðan er JR mættur. Núna er mikil spenna hvað hann hefur lært í Brasilíu, það verður eflaust eitthvað skondið? Kannski að hann hafi masterað þá list að öskra án þess að taka vindilinn úr munnvikinu. Ég kem með fréttir af þessu á fimmtudaginn.

posted at 11:37 e.h. by Victor

|

mánudagur, febrúar 9

Tíðindalaus mánudagur. Var í skólanum í allan dag, síðan beint á æfingu og síðan að læra. Með öðrum orðum mikið stuð. Svo ég komi með nýjustu fréttir úr Janet Jackson málinu þá er verið að tala um að núna verði hætt að vera með beinar útsendingar og jafnvel á að taka útsendingaleyfið að sjónvarpsstöðinni sem sýndi SuperBowl. Mjög merkilegt allt saman. Á morgun fer ég í einhvern barnaskóla hérna í Durham og eyði einum klukkutíma með einhverjum krökkum, les fyrir þau og svona. Ég er ekki alveg viss hvernig þetta verður, kemur allt í ljós. Íþróttamenn frá Duke eru víst svo miklar fyrirmyndir hjá krökkunum hér í bænum.

posted at 11:15 e.h. by Victor

|

Þetta er búin að vera frekar róleg helgi. Mínir menn hjá ManUtd unnu sinn leik þrátt fyrir að vera svona frekar tæpir á þessu. Algjör óþarfi að stressa mann upp en núna þurfa hin toppliðin bara að fara að tapa og þá verð ég sáttur. Ég tók síðan íbúðina í gegn og er allt glansandi hérna núna. Skólinn var síðan með eitthvað partý um kvöldið á einum staðnum í bænum. Ég vissi ekkert hvað var í gangi þegar ég mætti á staðinn en það voru allir í dressaðir í íþróttabúningum. Ekki að Kaninn sé oft mikið að dressa sig upp áður en þeir fara út en þetta var svona full mikið. Það kom síðan í ljós að það var þemað fyrir kvöldið. Ég komst reyndar aldrei inn þar sem það var allt troðið, nennti ekki að bíða í röðinni lengur en 5 mínútur þar sem það er ekkert rennsli í gegnum staðina sökum þess að það eru engir aðrið staðir í nágrenninu og því enginn að fara neitt. Þannig fór nú það. Ég ætlaði síðan að taka sunnudaginn með trompi og læra svolítið vel en það tókst kannski ekki alveg. Þar sem sólin skein ákvað ég að það væri nú sniðugt að labba út og reyna að lesa úti. Ég misreiknaði eitthvað aðeins veðrið og fór fljótlega aftur inn þar sem það var engan vegin nógu hlýtt. Það fer samt að styttast í að það verði hægt.

posted at 12:26 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast