
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, febrúar 20
Jæja, þá er vikan senn á enda og er komið að fyrsta leiknum okkar. Við förum til Wilmington á morgun, föstudag, og spilum við UNC-Wilmington (The Seahawks) á laugardegi. Við gistum í strandhúsi sem vill svo til að er í eigu foreldra stráks sem var hent út úr liðinu í fyrra, hvernig sem þá má nú vera. Við komum svo tilbaka á sunnudegi og kem ég þá með glóðvolgar sögur af þessari ferð, ef það verða þá einhverjar. Þess má geta að fyrir utan að vera heimabær MJ´s þá er Wilmington einnig staðurinn þar sem hinn geysi skemmtileg sjónvarpsþáttur Dawsons´s Creek eða Vík milli vina eins og það var þýtt á íslensku var tekinn upp.
miðvikudagur, febrúar 18
Það er þá loksins komið á hreint hvernig þessari viku sem öll vorönnin snýst um verður varið. Eftir að hafa loksins ákveðið að vera bara hérna í Durham og slaka á var mér boðið til Flórída. Þvílík snilld og verð ég að gefa Dan (á myndinni hér fyrir ofan) allar heiðurinn af þessu. Þetta er þýskur strákur sem hann þekkir sem bauð okkur með sér en fjölskyldan hans á hús á eyju fyrir utan Flórída, kölluð Northcaptiva. Þetta er algjör chill staður (sem sagt engin alvöru Spring Break staður) og eru engir bílar leyfðir þarna. Það þarf samt að fara í smá roadtrip fyrst þar sem það tekur 15 tíma að koma sér niður eftir. Það var síðan æfing í dag. Hún var ekkert merkileg nema fyrir þær sakir að þjálfarinn skellti nokkrum Wild Turkey í sig áður en að hann mætti. Var bara í stuði. Minnir mann óneitanlega á þjálfara sem maður hafði á sínum tíma í 3.flokki.
þriðjudagur, febrúar 17
Ég vil byrja á því að óska Gauta til hamingju með sína síðu. Hann er skiptinemi núna í Nýju-Mexíkó og er búinn að vera mjög öflugur að halda uppi síðunni sinni. Aftur á móti er hinn skiptineminn ekki að standa sig eins vel. Það er hann Biggi. Hann þarf eitthvað að taka sig á strákurinn, Gauti er að rúlla þeirri keppni upp en það er ennþá nógur tími fyrir hann að redda þessu. Það var engin æfing í dag sökum þess að það var smá snjór á vellinum. Þjálfarinn er ekkert lengi að blása af æfingar á vorin til þess að koma sér fyrr heim. Nennir þessu helvíti mikið. Lét okkur bara fá bolta og sendi okkur inn í sal að spila. Mér er svo sem alveg sama. Heima skilst mér að Grétar sé að raða inn mörkunum. Ef ég las rétt þá skoraði hann tvö skallamörk gegn Skaganum og eitt gegn KR. Spurning hvort að það þurfi ekki að fara að færa hann framar á völlinn. Hefur ekkert að gera í vörninni. Það varð ekkert úr neinu fríi í skólanum enda varla ástæða til þess en það er samt helvíti kalt hérna. Þið getið rétt ímyndað ykkur hvað ég fæ margar spurningar hvort að þetta sé ekki eins og heima hjá mér og hvort að þetta sé ekki eins og ég vilji hafa það. Ég segi að sjálfsögðu að þetta gerist ekki mikið betra. Jú, þær eru oft frekar ómerkilegar samræðurnar sem maður þarf að halda uppi við suma hérna. Það fer síðan að styttast í miðsvetrarprófin hjá mér. Mér líst ekkert á þetta. Það hefur varla neinn kennari minnst á þetta þannig að þetta endar eflaust á því að hrannast upp í sömu vikunni. Það verður stuð.
mánudagur, febrúar 16
Já, það farið að snjóa hérna aftur. Þetta er með ólíkindum. Maður kom ekki hingað fyrir þetta. Núna veit maður ekkert hvað gerist á morgun. Verður skóli eða ekki? Það er Sever Weather Policy í gangi núna fram til 10 á mánudagsmorgni en hvað gerist eftir það? Þetta er allt mjög spennandi. Ekki nóg með að það hafi snjóað þá tapaði Duke líka í dag í körfunni. Það gerist ekki á hverjum degi. Ég ætla að fara að drífa mig í háttin núna. Verð að gera ráð fyrir því að mæta í tíma á morgun. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|