
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
fimmtudagur, febrúar 26
Svo virðist sem ég hafi verið eitthvað aðeins of snöggur að fagna vorinu því að hvað haldiði að hafi gerst. Jú, það fór að snjóa og því búið að fara frá því að vera um 17 gráður niður að frostmarki. Það er því allt komið í uppnám í N-Karólínu og er Severe Weather Policy í gangi hjá skólanum. Ekki er enn búið að fresta tímum en það kemur eflaust að því. Veðurfréttirnar höfðu þetta um málið að segja: ''WINTER STORM WARNING IN EFFECT THROUGH FRIDAY MORNING - Travel Conditions Will Deteriorate Rapidly As The Snowfall Increases In Intensity. Roads And Even Interstates Will Become Snow Or Slush Covered Quickly. Needless To Say... Travel Across The Region Is Discouraged. If You Must Travel... Let Someone Know Your Intended Route And Expected Arrival Time'' Mér þykir að það fylgi sögunni að þetta er ekki mikill snjór, rétt svona jólasnjór sem bráðnar á strax á götunum og því er ótrúlega gaman að sjá fólk hérna fara á taugum yfir þessu. Einn kennarinn í dag byrjaði tímann á því að spyrja okkur hvort að við vildum fara heim áður en færðin yrði verri og bað fólk um að hafa öryggið að leiðarljósi í þeirri ákvörðunartöku. Að sjálfsögðu treysti engin sér til þess að vera lengur í skólanum og þar með lauk þeim skóladegi. Það þarf náttúrulega ekki að spyrja að því að þjálfi frestaði æfingu líka.
miðvikudagur, febrúar 25
Ég hef mikið verið að spá í sumarvinnu síðustu daga og svona til þess að tryggja mig aðeins þá talaði ég við Steinunni garðyrkjustjóra í dag. Hún sagði að ég væri alltaf velkominn að koma aftur út á Nes í flokksstjórann ef ekkert annað býðst. Gott að hafa eitthvað svona í bakhöndinni. Svo er bara að bíða og sjá hvað gerist. Það verður allavega nóg að gera á næstu dögum. Var að komast að því að það er líka próf á miðvikudaginn næsta en það eru einnig próf á mánudegi og þriðjudegi. Einnig þarf ég að halda fyrirlestur á mánudeginum, eitthvað sem ég hef mikið gaman af. Jæja, nóg komið af hangsi og væli. Best að fara að koma sér að verki. 8 dagar í Spring Break.
mánudagur, febrúar 23
Sólarhringurinn hjá mér er komin í algjört rugl. Ég er búinn að sjá það að það hentar mér engan veginn að byrja seint í skólanum á daginn. Ég byrja aldrei fyrr en að hádegi í skólanum en þetta þýðir náttúrulega að ég fer ekki að sofa fyrr en ég sé að fólk heima er farið að logga sig inn á msn-ið, þ.e. svona upp úr 3 eða 4 og hefur það komið fyrir að ég hef verið tæpur á því að missa af fyrsta tímanum. Ekki nógu gott. Já, ég var ekki búinn að segja frá aðaldjókinu hérna í Duke þessa dagana. Það var nefnilega að koma nýr forseti yfir skólanum og hefur nafnið á honum verið hláturefni í blöðunum síðustu daga. Hann heitir Richard Broadhead og er að sjálfsögðu kallaður Dick Broadhead. Kannski ekkert rosalega fyndið en ég náði allavegana að skrifa eitthvað í dag.
sunnudagur, febrúar 22
Þá er maður mættur aftur til Durham. Þetta var bara fín ferð niður til Wilmington. Við töpuðum reyndar leiknum 2-1 en það var svo sem enginn neitt að stressa sig of mikið á því. Ég byrjaði á miðjunni en var síðan færður í vörnina þegar einn varnarmaðurinn meiddist. Ég var ekkert alltof sáttur með það en hvað getur maður gert. Þetta var greinilega fyrsti leikur hjá báðum liðum í langan tíma og gæði leiksins eftir því. Völlurinn var ekki upp á marga fiska heldur og hjálpaði það ekkert til. Hann var kannski svona svipaður og flyðran í gamla daga þannig að það var oft erfitt að ná almennilegu valdi á boltanum. Við spilum síðan aftur næstu helgi og vonandi verður það skárra hjá okkur. Svo við snúum okkur að öðru þá get ég tilkynnt það hér með að vorið er komið hérna í Durham og er eins gott að fara að þurrka rykið af stuttbuxunum. Núna er bara að þrauka í tvær vikur í viðbót í skólanum fram að fríi. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|