Victor
Mættur aftur til USA
fimmtudagur, mars 18

Mars-brjálæðið er byrjað, þ.e. úrslitakeppnin í háskólakörfunni. Duke vann fyrsta leikinn auðveldlega í dag og mun ég koma með fréttir af gengi þeirra um leið og þær berast. Þetta er skemmtileg úrslitakeppni en það getur verið helvíti súrt að fara nánast taplaus í gegnum tímabilið og tapa síðan einum leik og vera úr leik en svona er þetta meira spennandi og þ.a.l. meira sjónvarpsáhorf og meiri peningar og um það snýst þetta nú á endanum.
Það var einn strákur sem var í liðinu með mér í fyrra að fá samning við MLS-lið. Hann fær svokallaðan player-development contract og fær hann fyrir það 8500 dollara fyrir árið. Þetta er fáranlega lág tala og má til gamans geta að hann fékk hærri vasapening hérna í skólanum fyrir fæði og húsnæði. Honum gekk líka vel í skólanum þannig að hann hefði kannski átt að einbeita sér að því að ná sér í almennilega vinnu fyrir margfalt hærri summu.
Ég sá siðan á mbl.is að MR tapaði í Gettu Betur, ótrúlegt. Maður hélt að þetta myndi aldrei gerast.
Ég er algjörlega að missa alla brúnku sem ég náði í á Flórída, það er endlaus rigning hérna, þessu verður að fara að ljúka. Annars voru nokkuð gleðilegar fréttir að berast. Ég er um þessar mundir að setja saman stundatöfluna fyrir næsta vetur. Hún gæti litið mjög vel út, bíð samt með einhverjar yfirlýsingar þangað til að hún er endanlega tilbúin.

posted at 10:35 e.h. by Victor

|

miðvikudagur, mars 17

Það var St. Patricks Day í dag þannig að ég varð að kíkja á eina írska barinn í bænum í dag. Það var nú örugglega ekki eitt stykki Íri á staðnum en Kaninn er nú alltaf til í að fagna einhverju svona og á það jafnvel til að fara nokkuð langt í ættfræðinni til þess að finna tengsl. Eflaust margir sem telja sig 1/16 Íra eða minna en það. Það var
ágætis stemmning en það hefði samt örugglega verið meira gaman að vera í Boston í dag. Jæja, það var nú ekki meira í dag. Það var æfing í dag og ég gæti skrifað heila ritgerð um hvað þjálfararnir hérna eru vitlausir en ég nenni ekki að eyða meiri orku í þá, það er nóg að þurfa að hlusta á þá.



posted at 10:55 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, mars 16

Fór í bíó í kvöld, kíkti á Starsky and Hutch. Þetta var ágætis mynd, fyndin á köflum en átti kannski von á meiru enda með mikið að liðinu sem lék í Old School. Kannski var markmiðið sett full hátt að reyna að keppa við hana en samt sem áður ekki slæm mynd. Meðan ég var á Flórída þá kíkti þjálfarinn til Real Madrid og kom með glóðvolgt efni frá þeim. Hann sagði að þeir væru mjög góðir hvernig sem honum datt það nú í hug. Við eigum núna bara rúmar 3 vikur eftir af vortímabilinu í fótboltanum og spilum við 3 leiki. Ég þarf að velja íbúðir fyrir næsta vetur á laugardaginn. Þrátt fyrir að vera að fara á efsta ár þá fékk ég alveg vonlaust lotterí númer og enda líklega í sömu íbúð. Var að vonast til þess að geta komist í stærri íbúð þó að þessi sé svo sem ekkert hrikaleg en svo verður nú ekki. Ekkert hægt að gera í því.

posted at 10:14 e.h. by Victor

|

mánudagur, mars 15

Jæja, þá er ég kominn tilbaka frá Flórída eftir 15 tíma keyrslu. Reyndar mjög þægileg keyrsla þar sem þetta er nánast sami vegurinn alla leið, það er I-95. Þetta var algjör chill-vika og hefur sjaldan verið jafn ljúft að gera jafn lítið eins og þarna. Ég tók fullt af myndum og eru þær komnar inná netið.
Ferðalagið hófst á fimmtudegi strax eftir æfingu. Við vorum fjögur sem fórum saman, ég, Dan, Max og Claudia. Það var ákveðið að koma sér sem fyrst frá Durham og því nennti enginn að bíða eftir föstudeginum og var gotneska undralandið því hvatt strax á fimmtudagskvöldi. Það var keyrt fram eftir nóttu en klukkan 3 um nóttina voru bílstjórarnir alveg búnir á því (ég og Max) og var því ákveðið að leggja sig í 4 tíma og var síðan ferðinni haldið áfram. Við komum síðan á Pineland um 4 leytið daginn eftir, versluðum aðeins þar sem það er ekki mikið um verslanir á North-Captiva og síðan kom bátur og skutlaði okkur yfir á eyjuna þar sem meðalaldurinn var eflaust í kringum sextugt. Þar kom Ron, einn af fáum sem búa á eyjunni allt árið um kring, og sótti okkur á golfbílnum sínum. Það eru kraftmestu tækin sem eru leyfð á eyjunni. Við komum okkur fyrir, borðuðum og lögðum okkur síðan. Ég var að sjálfsögðu allur útbitinn daginn daginn eftir og lærði mína lexíu þar og var varkárari á kvöldin það sem eftir var enda mikill gróður á eyjunni og þar af leiðandi mikið að alls konar dýrum, meðal annars snákum. Það lá nefnilega einn á götunni þegar ég var að skokka og tók hjartað smá kipp þegar ég sá hann.
Núna tóku við 8 dagar sem voru allir mjög svo svipaðir og samanstóðu af eftirfarandi atburðum, borða, sólbað, skoða eyjuna, skokka, borða og liggja í heita pottinum en þó aldrei allt þetta á sama deginum. Þetta var sem sagt mjög afslappandi. Max kenndi okkur síðan hvernig maður veiðir fisk með spjóti. Hann náði einum strax en missti hann en stuttu seinna kom eitt stykki hákarl og greip greyið fiskinn. Þegar við sáum þetta þá var öllu sundi í sjónum og kanóferðum aflýst þar sem þessi kvikindi koma nánast alveg upp að landi. En eftir þetta þá var aðalmálið að veiða fiska, binda þá við bryggjunni og fá hákarlana til þess að koma. Það komu mest 3 sem voru að synda í kringum okkur á bryggjunni og náði ég fullt af góðum myndum af þeim. Við fengum seinna að vita að þetta eru víst hættulegustu hákarlarnir af þeim öllum og þeir sem eiga það helst til að narta í menn. Eins gott að enginn datt út í. Núna taka við síðustu 7 vikurnar af þessari önn og þá er maður orðinn senior hérna, ótrúlegt en satt.

posted at 9:41 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast