Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, mars 27

Haldiði ekki að strákurinn hafi vaknað fyrir allar aldir á föstudagsmorgni og verið tilbúinn að skrá sig í tíma þegar tölvukerfið hrundi hjá skólanum. Þetta var mjög svekkjandi þar sem núna þarf að endurtaka þetta allt á mánudeginum. Það hefur reyndar ýmislegt breyst núna á síðstu dögum varðandi tímana sem ég ætla að taka á næstu önn. Ég er núna að spá í að klára bæði gráðuna fyrir umhverfisverkfræði og byggingarverkfræði. Ég ætlaði alltaf að taka tíma í Architectural Engineering en sökum þess að þjálfararnir settu á æfingu á sama tíma og sá tími er í boði þá er ég að spá í að gera eitthvað annað. Þetta eru ekki margir auka tímar sem ég þarf að taka, 3 held ég, og þá er maður double major. Þetta þýðir samt að næsta ár verður ekki alveg sömu rólegheitin og ég sá fram á.
Duke vann í gærkvöldi og er komið í átta liða úrslitin eða Elite Eight eins og þeir vilja kalla það hér.

posted at 9:17 f.h. by Victor

|

fimmtudagur, mars 25

Við fórum á fyrstu æfinguna okkar á grasi í dag. Það var eitthvað sem ég bjóst ekki við áður en ég kom hingað að það yrði ekki alltaf æft á grasi. Helvítis gervigras. Það er nú bara þannig að þegar það rignir þá verður æfingavöllurinn okkar eins og mýri og það tekur alveg góða viku eða tvær af þurrki til þess að hann lagist. Þetta er svona fullseint þar sem voræfingunum lýkur eftir rúmar 2 vikur. Við spilum við Egil Atla og félaga í UNCG á sunnudaginn í Greensboro. Það verður náttúrulega bara eins og gönguferð í garðinum eins og alltaf. Það er erfitt að tapa fyrir Agli enda man ég ekki eftir því að það hafi nokkurn tíman gerst. Hvorki í leik né á æfingu.
Ég þarf síðan að vakna snemma morgun til þess að skrá mig í tíma fyrir næstu önn. Glugginn fyrir það opnar klukkan 7 í fyrramálið og er eins gott að vera snemma í því til þess að fá þá tíma sem maður vill. Aðalmálið er reyndar að vera snemma til þess að komast í golftímann. Lítil hætta á því að verkfræðitímarnir verði yfirfullir.

posted at 11:13 e.h. by Victor

|

miðvikudagur, mars 24

Við þurftum að fara til Buies Creek, N.C. til að spila við Campbell University í kvöld. Þetta er líklega með mest óspennandi stöðum sem hægt er að komast á. Algjört krummaskuð, white trash staður þar sem það eru heilu hjólhýsahverfin út um allt. Ég held líka að þetta sé töluvert trúað lið þarna og er þetta dry-county, þ.e. það er ekkert áfengi selt þarna. Mjög öðruvísi en það sem maður hefur séð áður svo ekki sé meira sagt. Ég hugsa að það hafi verið vegna þess að við vorum ennþá að ná áttum þarna að þeir skoruðu eftir 2 mínútur gegn okkur og síðan lágu þeir í vörn það sem eftir var og okkur gekk ekkert að skora. Leikurinn endaði því 1-0 fyrir þá en herbergisfélaganum tókst nú að klúðra víti þegar 2 mínútur voru eftir og svo dauðafæri mínútu seinna. Ég hefði nú sjálfur svo sem getað skorað en skotið hjá mér var eitthvað aðeins mis. Að öðru leyti var þetta nú ekki merkilegur leikur.

posted at 11:18 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, mars 23

Próf á morgun í steypufræði, stemmning. Því hefur stór hluti dagsins farið í læróm fyrir það. Ég skrapp reyndar í dágóðan tíma í mat þar sem Högni (hann var í MBA námi hér í Duke í fyrra) var í bænum og hittumst við Íslendingarnir á svæðinu (4) og kíktum á Maggiano´s sem er ítalskur staður. Við völdum eitthvað ákveðið af matseðlinum þar sem þjónarnir komu með hvern diskinn á fætur öðrum og var maður alveg pakksaddur eftir á. Þetta var mjög gott þó að maður hafi þurft góðan tíma til þess að melta þetta. Best að leggjast bara útaf þegar svo er. Högni keyrði síðan aftur til Richmond, Virginia þar sem hann býr núna (2 og 1/2 tíma héðan). Að sjálfsögðu var verið að reyna að skipuleggja ferð til hans og Fanneyjar, konu hans, einhvern tímann en við verðum nú að sjá til hvernig það fer. Ekki margar helgar eftir. Ef það gerist þá er líklegast að það gerist eftir að skóla líkur. Jæja, best að kíka aðeins í bækurnar áður en maður fer að sofa.

posted at 11:17 e.h. by Victor

|

mánudagur, mars 22

Það er loksins búið að ákveða hvaða hljómsveit spilar á campusnum síðasta skóladaginn. Það er reyndar ekki hljómsveit heldur einhver rappari sem heitir Kanye West. Hann á víst að vera á hraðri uppleið eða svo er okkur allavega lofað. Ef einhver veit deili á kauða, þá endilega látið mig vita. Ætli maður neyðist ekki til þess að brjóta aðeins lögin og downloada einhverjum lögum með honum svo maður verði ekki alveg út að aka þegar hann mætir. Það er reyndar orðið frekar ömurlegt að finna lög á netinu þar sem útgáfufyrirtækin eru farin að setja fullt af drasli á netið þannig að þegar maður ætlar að hlusta á það sem maður var að ná í þá fær maður bara hátíðnihljóð í eyrun. Ætli maður neyðist ekki til þess að fara að nota iTunes.

posted at 11:10 e.h. by Victor

|

sunnudagur, mars 21

Fátt merkilegt gerðist þessa helgina. Veðrið er reyndar búið að vera gott og skellti ég mér út á driving-range í gær og skaut nokkrum boltum ásamt Þóru og Kollu. Gekk ekkert rosa vel en það ætti að lagst á næstu önn þar sem ég sé fram á að geta loksins valið golftímann sem er í boði hérna. Annars er farið að styttast mikið í lok þessarar annar þar sem ég er kominn á síðasta kassann af lýsis-töflunum (maður klikkar ekki á þeim hérna úti). Veit ekki hvort maður myndi fúnkera rétt ef þær væru ekki á staðnum.
Ég og Biggi erum að reyna að plana að kíkja saman til New York og þá yrði páskahelgin væntanlega fyrir valinu. Spurning hvernig verður farið, þ.e. flogið eða keyrt, ef eitthvað verður af þessu. Það er svona 9 tíma akstur frá mér þangað og er það lítið mál eftir síðasta ferðalag. Jafnvel ódýrara fyrir okkur að leigja bara bíl og bruna þetta. Það er alveg ljóst að Geo-inn höndlar þetta ekki.
Svo ég haldi áfram að upplýsa fólk um gengi Duke í körfunni þá unnu þeir aftur og eru því komnir í 16 liða úrslit eða Sweet 16 eins og það er kallað. Þeir hafa dottið út þar síðustu 2 ár, við skulum vona að það gangi betur í ár.

posted at 11:43 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast