Victor
Mættur aftur til USA
föstudagur, apríl 2

Mikið að gerast á morgun eftir frekar rólega og tíðindalitla viku. Vinnan er farin að hlaðast upp núna enda farið að styttast ískyggilega í lok skólaannar. Aðeins tvær og hálf vika eftir af kennslu. Það verður samt að taka sér frí frá lærdómi á morgun enda á Kiddi bróðir afmæli og ekki hægt að vera að læra á þeim merkilega degi. Síðasti leikurinn okkar á þessu vori er á morgun og vonandi getum við endað þetta með sigri. Eftir leikinn þurfum við að fara til þjálfarans í mat og þegar því lýkur (vonandi fljótt) er kominn tími á körfubolta. Undanúrslitin í háskóla-körfunni eru á morgun og er mikil tilhlökkun hér fyrir þeim leik. Síðast þegar Duke og UConn spiluðu tapaði Duke en það var í úrslitaleiknum 1999. Manchester og Arsenal spila á morgun. Vonandi náum við að vinna Arsenal. Það þarf að fara að stoppa þá en ég er þó ekkert alltof bjartsýnn á það. Annars verð ég að lýsa óánægju minni með Saha, eitthvað að rífa kjaft út af Ruud. Hann verður ekki langlífur hjá Ferguson með svona vitleysu.

posted at 10:46 e.h. by Victor

|

miðvikudagur, mars 31

Ekki margt að frétta frá gotneska Undralandinu í dag. Stelpurnar í kvenna körfunni töpuðu reyndar í 8-liða úrslitum og eru því úr leik. Það er synd þar sem þær voru með nógu gott lið til þess að vinna þetta en það þarf ekki nema einn slakan leik í úrslitakeppninni til þess að þetta sé búið. Þær enduðu með 30 sigra og 4 töp en náðu samt ekki lengra en þetta. Nú er bara að vona að strákunum gangi betur um helgina sem verður í styttra lagi sökum þess að klukkan verður færð fram um einn klukkutíma á sunnudaginn.

posted at 11:34 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, mars 30

Ég verð nú að gefa þjálfaranum mínum það að það getur stundum verið ágætt að hafa hann. Hann nennir nefnilega minna en nokkur annar að vera á æfingum og þegar hann er einn að stjórna þá er pottþétt að sú æfing verður í styttri kantinum. Í dag þurftu aðstoðarþjálfararnir að fara eitthvað eftir upphitun þannig að hann var einn með æfinguna. Það var smá rigning, ekkert til þess að hafa áhyggjur af, en eftir svona 20 mínútur af spila þá kallar hann okkur saman og spyr okkur hvað við viljum gera, halda áfram eða hætta. Við vildum fá að spila lengur enda ekki búnir að vera lengi að þannig að hann segir ''jæja, 10 mínútur í viðbót'' og þannig endaði sú æfing.
Ég gleymdi síðan að segja frá því hvað við þurftum að gera á síðasta laugardag á æfingu. Það var ákveðið að hafa einhvers konar tæknipróf á æfingu og var þetta eins og maður væri kominn aftur í knattspyrnuskóla KR. Prófið samanstóð meðal annars af því að halda á loft, sparka eins langt og maður getur, beygja boltann inn úr hornspyrnu, rekja boltann, sparka bolta í slá og snúningar með boltann. Þetta var alveg með ólíkindum og hvað þeir ætla svo að gera með þessar upplýsingar veit ég ekki.
Svo ég snúi mér að öðru þá rakst ég á síðu þar sem hægt var að hlusta á nýjasta framlag Íslendinga í Eurovision. Hægt er að komast á síðuna hér. Ég held að við þurfum ekki að hafa áhyggjur að taka þátt á næsta ári, þvílík hörmung hefur ekki heyrst lengi. Ég kveð að sinni.

posted at 10:51 e.h. by Victor

|

mánudagur, mars 29

Það gekk alveg eins og í sögu að skrá sig í tímana í morgun. Það er samt ekkert smá álag á kerfinu þá daga sem skráningu í tíma fer fram. Ég smellti á takkann um leið og klukkan sló 7 en var samt númer 212 í röðinni. Ég komst samt í alla tímana sem ég vildi komast í og gat því sæll og glaður lagt mig aftur eftir að skráningu lauk. Ég náði að setja upp stundartöfluna þannig að ég byrja aðeins fyrr í tímum heldur en þessa önnina enda alveg steikt að byrja ekki fyrr en upp úr hádegi og vera svo vakandi langt frameftir.
Það er núna komið á hreint að ég verð ekki flokksstjóri áfram á Nesinu. Það er því algjörlega búið að splúndra upp Nándinni eins og vinnuhópurinn kallaði sig þar sem Höski og Bensi eru einnig búnir að fá vinnu annars staðar og ég held að ekkert af hinu liðinu ætli að halda áfram. Ég fékk sumarstarf hjá Línuhönnun og verð því núna að fara að gera eitthvað að viti.

posted at 10:49 e.h. by Victor

|

sunnudagur, mars 28

Einhvern tímann verður allt fyrst. Jú, það gerðist hið ótrúlega, ég tapaði fyrir Agli og félögum í UNC-Greensboro. Ég verð nú bara að óska honum til hamingju með þetta, hann skoraði meira að segja strákurinn. Þetta hefur aldrei gerst áður og mun ekki gerast aftur þannig að hann ætti að njóta þess meðan hann getur. Þetta var reyndar frekar skrítinn leikur. Framan af leik var svo sem ekkert merkilegt að gerast en síðan ákvað dómarinn að taka aðalhlutverkið á vellinum og rak 3 útaf á svona u.þ.b. 10 mínútum. Þetta var allt í fyrri hálfleik en í hálfleik báðu þjálfarar beggja liða dómarann að leyfa leikmönnunum að koma aftur inná þar sem þetta væri nú bara æfingaleikur og brotin ekki mjög gróf. Hann leyfði það sem betur fer þar sem við misstum 2 menn útaf. Við enduðum á því að tapa 3-0 en það var hálfgerð uppgjöf í liðinu eftir fyrsta markið og þetta var alveg búið spil eftir annað markið sem ég get nú alveg viðurkennt að hafa átt smá þátt í því klúðri. Egill skoraði síðan þriðja markið undir lok leiks.
Svo við snúum okkur að skemmtilegri tíðindum þá er Duke komið í undanúrslitin í körfunni og verður því mikil stemmning hérna næstu helgi. Næsti leikur er á laugardaginn og ef þeir vinna hann þá eru úrslitin á mánudeginum. Það væri gaman ef þeir kæmust alla leið í úrslitin en næsti leikur verður erfiður. Þeir spila við UConn (University of Connecticut) og eru þeir mjög góðir.
Best að fara að sofa. Þarf að reyna að vakna aftur eldsnemma til þess að skrá mig í tíma fyrir næstu önn. Vonandi gengur það betur heldur en síðast.

posted at 11:19 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast