
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, apríl 9
Frábær dagur. Eftir að hafa hangið inni fyrstu klukkutímana af deginum þar sem ég þurfti að skila heimavinnu fyrir lok dags þá skellti ég mér út á golfvöll. Glampandi sólskin og 26 stig, það er ekki hægt að fá þetta mikið betra. Það var reyndar mikið af fólki á vellinum og því gekk þetta frekar hægt en það var í góðu lagi. Afmælisdrengurinn frá því í gær, hann Antoine kom með og Þóra. Síðan spilaði einn gamall maður með okkur, var nú bara nokkuð góður. Spilið gekk svona upp og ofan til þess að byrja með en var farið að ganga bara nokkuð vel seinni partinn. Það var spilað alveg þangað til að sólin settist. Nú eru bara 8 skóladagar eftir. Það verður ljúft að klára þetta. Á Páskadag er Íslendingum á svæðinu síðan boðið í mat til Sólveigar í Greensboro. (50 mínútum frá Durham) Búið að vera nokkuð mikið að gera síðustu daga í skólanum. Var í prófi í dag og gekk það bara nokkuð vel. Þetta var síðasta prófið fram að lokaprófum. Það er ekkert frí gefið hérna vegna páskana. Hvorki á föstudaginn langa né á annan í Páskum. Bölvaður heiðingjaskóli. Það verður heldur ekkert páskaegg handa mér enda hefur maður ekki gott af því. Ég reyni kannski að halda uppi fjölskylduhefðinni og kíkja á Godfather yfir páskana. Sjáum til með það, ekki sama stemmningin þegar maður er einn í því. Kannski Nige nenni því. Það er samt alltof gott veður til þess að hanga inni. Þetta kemur allt í ljós. Í dag var síðasta æfingin hjá liðinu. Síðasta vortímabilinu hjá mér í því opinberlega lokið hér. Ótrúlegt hvað þetta líður hratt. Í tilefni af því þá fann ég mynd á netinu af mér þegar ég mætti hérna fyrst. Hvað er hægt að segja um þessa kollu? Eftir æfingu fór ég í kvöldmat með fullt af frönskumælandi fólki. Antoine, einn af þeim frönsku, átti nefnilega afmæli. 21 árs strákurinn, stór dagur í Ameríku. Það var samt ágætt þó að ég hafi svona dottið út úr samræðunum af og til þegar þau misstu sig í frönskunni.
miðvikudagur, apríl 7
Bjössi bróðir á afmæli í dag. Kallinn orðinn þrítugur. Ég óska honum til hamingju með það. Ég hef ákveðið að taka leikjadagskrána fyrir vorið af síðunni. Það eru tvær ástæður fyrir því. Annars vegar voru úrslitin ekkert til þess að hrópa húrra yfir og hins vegar eru leikirnir hvort eð er búnir. Fyrri ástæðan á kannski þátt í hvað ég er ekkert að hanga við að taka þetta burt. Fitness-prófin gengu öll nokkuð vel enda strákurinn nautsterkur og í toppformi, má segja að þetta hafi bara verið kökustykki. Ekki hægt að tala um sekkinn lengur, þarf að finna eitthvað nýtt nafn. En það verða fleiri próf á morgun, ekki alveg með á hreinu hvers konar. Chelsea vann síðan Arsenal og Real Madrid datt líka út. Þar sem ég gleðst yfir óförum annara þá voru þetta mjög skemmtileg tíðindi. Ég náði því miður ekki að horfa á Arsenal leikinn en hann var sýndur á ESPN hérna, aldrei þessu vant. Tímasetning ekki alveg nógu góð. Leikurinn var 2:30 og ég í tíma þá. Í staðinn fyrir að sýna seinni leikinn líka þá skiptu þeir yfir í snóker, einungis fyrir ESPN í BNA, alveg ótrúlegt.
mánudagur, apríl 5
UConn endaði á því að vinna úrslitaleikinn frekar auðveldlega í kvöld þannig að ég hugsa að gaurarnir hjá Duke séu frekar svekktir eftir að hafa klúðrað þessu á laugardaginn. Fyrir aðra þá þýðir þetta bara að það verður ekkert partý í kvöld og skóli á morgun. Ef þeir hefðu unnið þá hefðu allir útibekkir skólans verið teknir og í þeim kveikt. En það verður ekkert svoleiðis í vetur og svo sannarlega ekkert svona, því miður. En það verður að hafa það. Á morgun verða einhver lyftingapróf og hlaupapróf. Alltaf gaman að taka þau. Þjálfurunum finnst alveg einstaklega gaman að prófa úr hinu og þessu þó að þeir geri ekkert við þær upplýsingar sem fást úr þeim. Kolla var að koma tilbaka frá Íslandi. Af hverju eru það merkilegar fréttir. Jú, vegna þess að ég fékk að hafa bílinn hennar lánaðan á meðan hún var heima en núna er það aftur á gettó-bílinn þar sem skynsamlegast er að hafa rúðurnar opnar ef maður vill fá smá súrefni. Það var eitt af því sem gaurinn mælti með sem þegar bílinn fór í gegnum skoðun.
sunnudagur, apríl 4
Það var gaman að vakna upp á laugardagsmorgni og kíkja á netið. Manchester vann Arsenal sem betur fer og var það mikill léttir að sjá þau úrslit. Það hefði verið meira skemmtilegt hefði fleiri úrslit þann dag farið á sama veg. Við spiluðum nefnilega seinna um daginn við American Univerisity og breyttum til og töpuðum 3-0. Þetta var algjör aumingjaskapur en það gáfust langflestir upp eftir að markmaðurinn hjá okkur ákvað að gefa hinu liðinu eins og eitt mark. Reyndar ekki merkilegir leikir. Ef það ætti að líkja þessu við eitthvað þá er þetta jafnvel álíka og spila í haustmótinu heima eða jafnvel verra. Kannski frekar eins og æfingaleikir eftir haustmótið. En vortímabilið er allavegana búið og góðu fréttirnar eru þær að ég slapp allavegana meiðslalaus út úr þessu og eru það miklar gleðifréttir. Vonandi breyttist það ekkert og nýtt met verður jafnvel slegið í meiðslalausu tímabili. Síðan kom loksins að leiknum í körfunni. Þetta var hörkuspennandi leikur sem því miður endaði með því að Duke tapaði með einu stigi. Það má segja að þeir hafi klúðrað þessu sjálfir en þeir voru algjörlega með leikinn í sínum höndum þegar lítið var eftir en með kæruleysi og vitlausum ákvörðunum trekk í trekk tókst þeim að glopra niður forskotinu. Það verður því enginn titill í ár hjá þeim. Sunnudagurinn var síðan nokkuð góður. Högni sem býr í Richmond hringdi og var búinn að finna golfvöll mitt á milli Richmond og Durham þannig að ég skellti mér þangað og tók einn hring með honum og Þóru í blíðskaparveðri. Það þurfti samt að keyri yfir í næsta fylki (Virginíu) til þess en var vel þess virði. Verst að ég sé fram á að BB eigi ekki eftir að eiga sjens í mann næsta sumar. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|