
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
fimmtudagur, apríl 15
Ég náði mér í miða á Durham Bulls leik á morgun. Það er hafnarboltaliðið í bænum. Þetta verður hörkustemmning. Ég hef einu sinni á áður farið á hafnarboltaleik, skil lítið í leiknum sjálfum. Þetta er ósköp hægt og leiðinlegt sport en maður verður að vera í amerísku stemmningunni. Það verður líka allt fullt af Duke-krökkum á vellinum þannig að það verður vonandi hörkustemmning. Þetta er nú víst miðlungsfrægt lið í neðri deildum hafnarboltans hérna. Það er meira segja búið að gera mynd um það, Bull Durham heitir hún með stjórstjörnunni og Íslandsvininum Kevin Costner, ásamt Susan Sharandon og Tim Robbins. Ég er að sjálfsögðu búinn að skoða þá mynd og ef fólk hefur lítið að gera þá mæli ég með henni. Í leiðinni er hægt að kynnast töfrum Durhamborgar. Ég trúði því ekki í morgun þegar ég vaknaði. Klukkan var orðinn 12 að hádegi. Mér hafði sem sagt tekist að sofa yfir mig í fyrsta tímanum sem byrjar klukkan 11:50. Þetta á ekki að vera hægt en mér tókst það nú samt. Frétti seinna að það hefði nú ekki verið farið yfir mikið í tímanum þannig að þetta slapp alveg. Það er erfiðara með hverjum deginum að mótivera sig til þess að fara núna þegar það er svona stutt eftir. Bara 5 skóladagar. Ási ''yfirflokksstjóri'' Haralds mætir síðan til Durham morgun. Hann fer nú að gera tilkall til titilsins beiler ársins. Klikkað aftur strákurinn. Það var sem sagt búið að plana það að kíkja aðeins út á lífið á fimmtudeginum og svo golf á föstudegi. Hann átti síðan flug héðan af föstudeginum en haldiði ekki að hann hafi breytti fluginu og fært það fram á fimmtudag. Öll plön farin í rúst. En ég fé allavegana að nota bílinn hans meðan hann er í burtu þannig að það telur aðeins upp í.
miðvikudagur, apríl 14
Campus-löggan er alveg að fara yfirum hérna núna. Það var einhver stúdent rændur með hnífi um síðustu helgi þegar hann var að rölta heim til sín frá einum af pöbbunum í nágrenninu. Þetta gerðist reyndar rétt hjá hérna þar sem ég bý og á gönguleið sem ég geng oft, en aldrei einn á kvöldin, líkt og þessi kappi gerði. Hann var nú með lítið á sér þannig að þeir höfðu ekki mikið upp úr krafsinu en löggan er núna á rölti um allt og spyr fólk um skilríki ef þeir hitta á það. Eins gott að muna eftir Duke-kortinu. Eins sorglegt og það er þá er reyndar mjög ólíklegt að ég verði stoppaður og spurður um skilríki, mun líklegra að herbergisfélaginn verði stoppaður sökum litarhátts. Lýsingin af einhverjum er yfirleitt á þennan veg: ''5-11 black man wearing blue jeans and.....'' með öðrum orðum, þetta gæti átt við ansi marga. Átakið hjá löggunni er nú örugglega líka eitthvað tengt því að það er re-union helgi núna næstu helgi og þá kemur allt liði sem gefur skólanum pening, eins gott að halda þeim góðum.
mánudagur, apríl 12
Þetta er búinn að vera þreyttur dagur eftir að hafa vakað langt frameftir í gærnótt. Sem betur fer er hann nú senn á enda þessi dagur. Ég var rétt í þessu að ganga frá flugfarinu heim. Það er því komið á hreint að ég legg af stað frá Raleigh/Durham Internation Airport sunnudaginn 2.maí og verð því kominn heim í kuldann eldsnemma á mánudagsmorgni 3.maí. Þetta er innan við 3 vikur. Þar sem ég klára það snemma þá mun ég reyna að gera í því að pirra fólk þá sem á enn nóg eftir af prófum en það er ekki komið að því ennþá þar sem mesta törnin hjá mér er enn eftir. Búin að vera grenjandi rigning hérna í dag og verður það víst næstu 2 daga. Ekki nógu gott. Ætlaði að reyna að njóta sólarinnar aðeins áður en ég kæmi heim. Það gæti þó enn ræst úr þessu. Klukkan er núna orðin alltof margt og ég sit hérna enn og er að reyna að klára skýrslu. Ég ákvað því að taka smá pásu og skrifa nokkrar línur hérna. Ég kom úr páskamatnum frá Greensboro fyrir nokkrum klukkutímum. Þetta var bara vel heppnað. Sólveig sér alltaf vel um okkur krakkana. Hún var búinn að elda lamb fyrir okkur með ýmsu meðlæti. Þetta var nú svona það sem stóð upp úr deginum. Annars búinn að sitja að mestu leiti fyrir framan tölvuna að læra. Versta við að læra fyrir framan tölvuna er að það er alltof mikil truflun. MSN, IM, hlusta á tónlist, lesa fréttir og hinur ýmsu misgóðu tölvuleikir. Ég fór í bíó í gærkvöldi sem er kannski ekki frásögu færandi nema fyrir þær sakir að ég verð eiginlega að vera fólk við þessari mynd. Ég fór að sjá Whole Ten Yards og var þetta með ólíkindum léleg mynd. Ég mæli því með að fólk spari sér bæði tíma og pening og sleppa því að sjá þessa mynd. Fyrir þá sem fannst fyrri myndin ágæt líkt og ég, þá er þessi ekkert á við hana. Jæja, best að reyna að klára þessa skýrslu svo ég geti farið að sofa. Victor Vagn, til hamingju með daginn. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|