Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, apríl 24

Þar sem ég nennti ekki að fara í lyftingasalinn hjá okkur að lyfta í dag þá ákvað ég að fara þangað og taka nokkrar myndir. Ég hef oft hlegið að nokkrum frösunum sem hanga á veggjunum þar og ef ákveðið að sýna nokkra af gullmolunum hérna. Þjálfararnir dýrka svona klisjur. 1, 2, 3, 4, 5, 6. Ef þetta hjálpar manni ekki að verða ''pumped up'' og klára síðasta settið þá gerir ekkert það. Síðan þyrfti bara að toppa með þetta með því að spila lokaræðuna hjá Al Pacino úr Any Given Sunday og þá er ættu allir að vera tilbúnir. Æi, ég gleymdi því, þeir hafa nú þegar gert það, jebb, ekkert grín. Ætli ég láti þetta ekki bara nægja í dag. Þarf að halda áfram að læra því að ég veit að ''failure to prepare is certainly preparing to fail''

posted at 9:32 e.h. by Victor

|

Kaninn er núna að búa til rosa hetju úr einum hermanni sem fórst í Afganistan. Varla búið að tala um annað á fréttastöðvunum í dag. Þetta var gaur sem var í NFL deildinni en eftir 9-11 þá fékk hann svo mikið samviskubit yfir því góða lífi sem hann lifði að hann skráði sig í herinn. Það er nóg af rugludöllum hérna.
Ég náði nokkuð góðri törn í dag í lærdómnum. Nokkuð sáttur með það. Þetta gekk það vel að ég gat leyft mér að kíkja í bíó um kvöldið. Ég fór að sjá nýustu mynd Coen bræðra, The Laydkillers. Þetta var bara fínasta mynd. Ég komst síðan tilbaka og glápti á aðeins á elimidate. Það jafnast ekkert á við að enda kvöldið á því að horfa aðeins á lélega date-þætti. Ég þarf núna að fara að hugsa um það hvort að Sovétríkin hafi getað lifað. Það er ritgerðarefnið fyrir sögutímann minn. Allar ábendingar um það efni eru vel þegnar. Jæja, best að segja þetta gott í bili.

posted at 12:41 f.h. by Victor

|

föstudagur, apríl 23

Sökum þess hve margt var að gerast í vikunni þá gleymdist að segja frá ýmsu. Þriðjudagurinn var allavega nokkuð áhugaverður. Þá aðallega sökum þess að það voru einstaklingsfundir með þjálfurunum. Þetta hafa í gegnum tíðina verður mjög viðburðaríkir fundir þar sem ýmislegt hefur fengið að fjúka. Þá einkum frá þjálfurunum þegar þeir hafa reynt að sannfæra mig um að skipta um skóla, flýta útskrift eða bara að drulla mér í burtu. Það voru skemmtilegir tímar sem maður á seint eftir að gleyma. Jæja, síðan þá hefur nú ýmislegt gerst. Ég ákvað að sjálfsögðu að gefa ekki eftir og þeir hafa svona séð að í dag er mér nett sama um hvað þeir segja. Ég mætti á fundinn og var hann í styttri kantinum í ár. Sökum þess að ég bæði stóð mig ágætlega í vor í leikjunum og rúllaði upp öllum fitness testum þá höfðu þeir voðalega lítið til að setja út á. Sátu bara þarna eins og vitleysingar. Þeir fóru nú samt ekkert að hrósa mér, það hefði verið til full mikils mælst en það var ekkert verið að rakka mann niður þannig að ég var bara sáttur. Brosti bara til þeirra og sagði einhverja ameríska frasa sem ég vissi að þeir vildu heyra. Eitthvað um að vinna vel, berjast og bla bla bla. Maður hefur lært ýmislegt í Ameríku. Um að gera að spila bara eftir þeirra reglum þessa síðustu mánuði sem ég þarf að umbera þá.
Ég fór síðan í morgun og spilaði á svona mini-tónleikum. Þetta var bara lokadæmið í píanó tímanum sem ég var í þessa önnina. Það gekk bara vel. Núna þarf ég að fara að koma mér burtu frá netinu, grafa mig inni á einhverju bókasafni og fara að læra.

posted at 8:44 f.h. by Victor

|

miðvikudagur, apríl 21

Þá er síðasta skóladegi lokið. Núna hefst stuðið. Þetta var ágætis dagur. Eins og gengur og gerist þá gengur oft illa að fá fólk til þess að mæta í tíma á þessum degi en eins og góðum námsmanni sæmir þá mætti ég í báða mína tíma. Það hjálpaði kannski aðeins að einn kennarinn hafði quiz þannig að það var eins gott að mæta. Allavega, við Nige reyndum að taka aðeins til í íbúðinni eftir það og buðum fólki til þess að koma hingað og chilla með okkur fram eftir degi. Það mætti eitthvað af liði og vorum við úti á svölunum mestan hlutann af deginum. Mjög afslappað sem sagt. Þegar það fór að líða að kveldi þá ákváðum við að það væri kominn tími til þess að koma sér af stað yfir á staðinn þar sem tónleikarnir voru (main quad). Þar hittum við fullt af fólki. Campusinn var alveg troðfullur og ágætis stemmning. Ég mæli samt ekkert sérstaklega með rapptónleikum, allavegana þá heyrðist voðalega lítið í gaurnum uppi á sviði, aðallega bara bassi. Ekki að þessi gaur, Kanye West, sé orðin nein stórstjarna þannig að maður þekki lögin hans en hann á einhver 2 lög sem hafa fengið töluverða spilun. Verst að það hætti allt klukkan rétt rúmlega 10 um kvöldið og var ekkert mikið að gera eftir það. En svona er þetta of hérna, en dagurinn var búinn að vera góður fram að því. Núna tekur bara við lærdómur, stemmning.

posted at 11:33 e.h. by Victor

|

mánudagur, apríl 19

30 stiga hiti og sól. Það er ekki hægt að gera manni það að þurfa að fara í tíma í svona veðri. Mér finnst að það ætti að aflýsa tímum þegar svona er. Maður er að rölta í tíma eftir að hafa sett á sig sólarvörn, í stuttbuxum og strandskóm. Hausinn á manni er náttúrulega kominn í sumarfrí þegar maður finnur lyktina af sólarvörninni. Ef þetta verður ekki ástæðan fyrir verri skólaárangri þá veit ég ekki hvað. 2 dagar eftir.

posted at 11:25 e.h. by Victor

|

sunnudagur, apríl 18

Jæja, þá er mjög athyglisverðri helgi senn að ljúka. Þeirri síðustu hérna úti því að núna er bara ein prófhelgi og síðan verður flogið heim helgina eftir. Þetta var búið að vera algjör snilld framanaf. Það er búið að vera nálægt 30 stigum alla dagana og tók ég meiri hlutann af föstudeginum í golf, sleppti meira að segja einum tíma fyrir, úff. Ég kíkti síðan með 3 öðrum krökkum á hafnarboltaleik um kvöldið. Þetta merkilegt sport. Ég man nánast ekki neitt eftir leiknum. Ég veit að liðið héðan tapaði víst endanum en það var aukaatriði. Ég held að flestum hafi verið alveg sama, þegar maður leit yfir mannfjöldann þá voru fæstir að einblína eitthvað á leikinn. Fólk sat bara í rólegheitum og spjallaði og borðaði mjög svo amerískan mat. Hot dog og funnel cake. Það er svolítið fyndið að áhorfendur hérna eru ekkert að reyna að skapa neina stemmningu. Þegar þeir klappa, eða hvetja þá er það yfirleitt að því að það stendur á stóru skilti hvað skuli gera. Noise, cheer og svo framvegis. Síðan er tónlistin bara sett í botn.
Laugardagurinn var öllu rólegri, til að byrja með. Ég reyndi eins og ég gat að vera eins mikið úti og ég gat því að maður verður að nota þessa síðustu daga í góða veðrinu eins og maður getur áður en haldið verið heim á leið í kaldan maí mánuð. Það var síðan kíkt út á lífið um kvöldið og það endaði ansi merkilega. Ég mætti með myndavélina mína og var búinn að ná góðum myndum af alvöru Kanadansi og voru allir í góðu stuði. Svona rétt fyrir lokun (í kringum 2 sem sagt) þá komu 4 löggur og dyraverðir og rifu einn strákinn, Brai, sem var með okkur út. Honum var hent í gólfið, handjárnaður og settur út í löggubíl. Hann var sakaður um trespassing. Mér skilst að honum hafi verið vísað út fyrir að girða ekki skyrtuna, hann gerði það síðan þegar út var komið, fór aftur inn og þá var kallað á lögguna. Þegar við reyndum að tala við lögguna þá var okkur bara vísað frá og hótað að vera handteknir líka, okkur sagt að það væri nóg pláss í bílnum. Á endanum vorum við sem fórum af stað einnig beðnir um að fara af svæðinu. Ótrúlegt. Það var alla vegana farið með Brai niður á löggustöð og honum hent í klefa þar. Við fylgdum í kjöfarið eftir og var þetta eins og bíómynd. Við bailuðum hann, það var sett 1000 dollara á hann en við fengum svona Bail Bonder til þess að ábyrgjast hann og tók hann 150 dollara fyrir það. Chris Lyons hét sá gaur og fengum við nafnspjaldið hjá honum. Á því stendur ''If you need to be free, just call on me''. Algjör silld. Brai losnaði alla vegana út úr fangaklefanum og fékk að fara heim. Hann þarf síðan að mæta fyrir rétti 11. maí.

posted at 2:39 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast