Victor
Mættur aftur til USA
fimmtudagur, júlí 8

Ég fann þetta snilldarmyndband á síðu HK-inga. Þarna er hægt að sjá mörkin(okkar mörk) úr leiknum á þriðjudaginn. Þar sem sjónvarpsstöðvarnar sáu sér ekki fært að mæta á þennan stórslag þá var gaman að einhver tók þetta upp og sá sér fært að setja þetta á netið. Þetta er samt svolítið stór fæll þannig að þeir sem eru með slaka tengingu geta bara gleymt þessu. Einnig held ég að það þurfi að ná í quicktime til þess að horfa á þetta en það er svo sem minna mál.
Já, svo ég uppfræði fólk aðeins hversu frábært það er að vera í Duke og Durham þá sagði þjálfari körfuboltaliðsins okkar bara nei við því að flytja til Kaliforníu og taka við stórliði Lakers. Ekki nóg með það heldur voru honum einnig boðnar 40 milljónir dollara fyrir að flytja til draumaborgarinnar en allt kom fyrir ekki og hann ætlar sér bara að vera áfram hjá okkur. Merkilegt.

posted at 8:41 f.h. by Victor

|

miðvikudagur, júlí 7

Eftir erilsaman dag í vinnunni :) í gær þá kallaði ég þetta bara dag snemma og fór heim að hvíla mig fyrir stórslaginn í Kópavoginum, HK-Breiðablik. Já, og þetta var svo sannarlega hörkuleikur. Í fyrri hálfleik var mikill taugatitringur hjá báðum liðum en þó aðallega hjá okkur enda mikið af ungum strákum í liðinu og gekk spilið oft brösulega þó að baráttan hafi alveg verið til staðar. Þetta var nú líklega skásti hálfleikur hjá mér í tæp 4 ár þannig að ég var nokkuð sáttur. Staðan í hálfleik var 1-1 en Blikar skoruðu eftir hornspyrnu en við jöfnuðum með glæsilegu skallamarki. Seinni hálfleikur byrjaði frekar illa hjá okkur og aftur fengum við mark á okkur eftir hornspyrnu og var þetta svona hálf kraftlaust hjá okkur þar til að 10 mínútur voru eftir. Það virtist þó lítið ætla að ganga og var venjulegur leiktími búinn þegar enginn annar en Torinn fékk boltann á kantinum og náði líka að gefa þessa fínu fyrirgjöf fyrir markið og bamm, Gísli hamraði boltann í netið og staðan orðinn 2-2 og rétt rúm mínúta eftir. Blikar fóru síðan í sókn en misstu hann, við geystumst fram og aftur skoraði Gísli þegar aðeins 2 sekúndur voru eftir. Þetta var alveg ótrúlegt og voru stuðningsmenn HK-inga alveg að missa sig í stúkunni. Var þetta stuldur, ég veit það ekki og satt best að segja er mér alveg sama. Við unnum leikinn og það var sungið vel og lengi að leik loknum. Valur tapaði síðan og því er nýja stórveldið óvænt í efsta sæti 1.deildar og takmarkinu um að falla ekki verður senn náð (það sögðu Þróttarar reyndar líka í fyrra þannig að við skulum ekki fagna of snemma).

posted at 2:54 f.h. by Victor

|

þriðjudagur, júlí 6

Það var dregið í bikarnum í dag og við HK-ingar fengum Valsara. Ekki fékk maður að fara í Frostaskjólið í þetta skiptið en við fengum þó alla vega heimleik. Þetta tryggir einnig að að verður pottþétt eitt 1.deildarlið sem kemst í undanúrslitin, vonandi við. Hérna er hægt að sjá dráttinn. Jæja, það er best að hætta að hugsa um þetta, leikurinn er ekki fyrr en eftir mánuð, og fara að einbeita sér að leiknum gegn Breiðablik í kvöld. Hver veit nema maður taki eitt svona fagn enda hefur það vakið mikla kátínu meðal þeirra sem ég þekki.

posted at 5:57 f.h. by Victor

|

mánudagur, júlí 5

Þá er enn einni vikunni lokið og enn einn sigurinn kominn í hús. Við unnum Reyni Sandgerði, frekar ósannfærandi, í bikarnum á föstudagskvöldið og erum því komnir í 8-liða úrslit. Það verður dregið um það á miðvikudaginn og spennandi verður að sjá hverjir næstu mótherjar verða. Þetta er í fyrsta skipti sem HK kemst svona langt í bikar og því mjög gaman að taka þátt í því. Vonandi er þetta þó ekki búið hérna en við verðum þó að spila betur ef við ætlum eitthvað lengra, bæði í deild og bikar. Grikkland varð síðan Evrópumeistari í fótbolta í gær þannig að það var viss sigur fyrir leikstíl HK-manna sem beita svipaðri taktík.
Eftir leikinn á föstudaginn kíkti ég á móralskt kvöld hjá Gróttunni. Þeir voru á Ölver að gera sig að fífli í Karaoke. Það er búið að ganga eitthvað illa hjá þeim upp á síðkastið þannig að það átti bara að redda því með einu móralsku kvöldi. Ég og Ófinn erum hér í góðu stuði.
Á laugardeginum fórum ég, Bensi, Tryggvi og Snorri frændi Tryggva og kepptum í Iceland Express Open, sem er golfmót. Fyrir mót voru væntingarnar miklar og því mikil spenna í byrjun móts sem lísti sér best með hrikalegri spilamennsku. Það er því best að eyða ekki of miklu púðri í það að tala um árangurinn þvi að hann var enginn. Ég reyndar endaði ofar en Beilerinn þannig að milli okkar er 2-1 en enga síður var þetta hriklega slakt. Um kvöldið var síðan aðeins kíkt á Habbann með Höska og félögum. Það var ekki ferð til fjár og fór ég snemma heim eftir frekar dapurt kvöld.
Sunnudagskvöldið var öllu skemmtilegra. Þar var ég einn af 18 þúsund áhorfendum sem fóru að hlusta á Metallicu spila. Þetta voru heitir, sveittir en magnaðir tónleikar og suðaði í eyranu á manni langt fram eftir kvöldi.
Ég er því búinn að fara í gegnum alla helgina og núna er það bara vinnan. Karsten, yfirmaður minn, verður ekkert á staðnum þessa vikuna þanngi að jebb, það verður nóg að gera. :)

posted at 1:12 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast