
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, júlí 16
Það er nú þegar ljóst að Stórveldið úr Kópavoginum verður á toppi 1.deildar sama hvernig leikurinn gegn Fjölni fer í kvöld. Við vonumst samt eftir sigri en þetta verður hörkuleikur býst ég við. Við þurfum samt að spila miklu mun betur en síðast. (langaði bara að segja miklu mun) Strax eftir leik verður síðan brunað í vinnupartý sumarstarfsmanna þar sem ég býst við gríðarlegri stemmningu. Kannski maður mæti með myndavélina og taki eitthvað af myndum af öllum ósköpunum. Hver veit? Á morgun er síðan afmæli hjá fyrirliðanum Gulla þannig að dagskráin er þétt þessa helgina. Hann heimtar pakka kallinn. Þarf að redda því á morgun. Fínt mission fyrir morgundaginn. Á sunnudaginn opna síðan golfvellirnir aftur eftir meistarmótin og er stefnt á að taka hring. Það er farið að hringja í mann til þess að fá að fara með manni, svo vinsæll er maður. Þóra ætlar að koma með mér og Ítalanum og ekki ólíklegt að Úðinn mæti líka. Synd að komast ekki í dag enda snilldarveður. Yfirmaðurinn minn er að fara í sumarfrí núna og er verið að vinna í því að koma mér á aðra deild þessar síðustu vikur hérna, kemur allt betur í ljóst eftir helgi. Ef það gengur ekki verð ég bara á netinu þangað til ég fer út. Ég vil síðan minna fólk á að stórveldisbolirnir eru komnir í sölu, kíkið á þá hér.
mánudagur, júlí 12
Jæja, það hlaut að koma að því. Fyrsta tap mitt í HK er staðreynd. Við töpuðum fyrir Stjörnunni á föstudagskvöldinu á nýja gervigrasvellinum þeirra. Þetta var nú alls ekki slæmur leikur að okkar hálfu en hlutirnir einhvern veginn gengu ekki upp. Við komust reyndar yfir með stórglæsilegu skallamarki, jafnvel að þetta sé mark sumarsins, en þegar stutt var í hálfleik þá ákvað ágætur dómari leiksins að dæma vítaspyrnu þegar greinlegt var að brotið var leikmanni Stjörnunnar utan teigs. Best að tala ekki meira um dómarann svo maður lendi ekki sömu leiðindum og Grindvíkingurinn sem missti sig aðeins í gagnrýni á dómara landsins. Seinni hálfleikur var nú svona frekar daufur en þegar 10 mínútur voru eftir náðu Stjörnumenn að skora og þar við sat. Hundfúlt að tapa en Valsarar töpuðu einnig þannig að við erum ennþá á toppnum í 1.deildinni. Næsti leikur er siðan við Fjölnismenn á föstudaginn. Ég og Ófinn reyndum siðan að fara í næturgolf eftir leikinn en ég gafst upp á miðri 3.holu, bæði sökum þreytu og lélegs gengis. Á laugardeginum ákváðum ég, Höski og Bensi að hittast og kíkja í bæinn saman. Þetta kvöld heppnaðist alveg stórvel og var mikið stuð og fíflagangur. Við breyttum til og kíktum á Habbann þar sem við hittum fullt af fólki og dj Andri sá um að halda uppi stuðinu. Öllum að óvörum þá beilaði Beilerinn fyrstur allra en það er svo sem engar fréttir. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|