
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
fimmtudagur, ágúst 19
Úff það var heitt og rakt í dag. Þetta var langt frá því að vera sniðugt. Þar að auki voru alltof langar æfingar. Seinni æfingin var í þrjá og hálfan tíma þar sem við þurftum að fara að lyfta. Ég náði að gera óvenju mikið, kannski full mikið, er hálf aumur núna en það verður vonandi bara fínt á morgun. Já, hitinn var svo rossalegur að ég fór af æfingu, í sturtu, rölti heim í korter og strax aftur í sturtu. Ófinn var fékk að fylgjast með þessu þar sem ég var einmitt í símanum að tala við hann á leiðinni. Ég lá síðan við sundlaugarbakkan fram að næstu æfingu, er einmitt að reyna að vinna aðeins í þessari bóndabrúnku. Ófi ætlar einmitt að mæta hingað í næstu viku og vera hjá mér í 10 daga. Það verður stemmning. Ég var að taka eftir því að það er kominn 19. þessa mánaðar. Nýtt kortatímabil. Það kemur sér vel. Ég verð þá ekki kominn á yfirdrátt fyrr en í október. Þetta skiptir allt máli. Hvað varð um allan peninginn sem ég fékk í sumar, það var nú ágætlega borgað? Ég bara veit það ekki. Bara í rugl, held ég. Alla vega alltof stór hluti af þeim. Eitthvað var nú í eyðslu sem hægt er að sætta sig við en damn hvað mikið fór í rugl. Jæja, þýðir ekkert að stressa sig yfir þessu. Lína hefur alltaf staðið sig vel og ég efast ekki um að hún mun gera það núna. Annars er stefnan sett á Las Vegas á þessu skólaári og það mun alveg pottþétt redda öllu :)
miðvikudagur, ágúst 18
Ég hefði alveg verið til í að vera á Laugardalsvellinum í kvöld og sjá Íslendinga vinna Ítali 2-0 ásamt 20 þús öðrum Íslendingum. Þetta hlítur að hafa verið nokkuð magnað, verst að þetta var ekki leikur í alvöru keppni. Ég er svo sem ekkert voðalega hissa. Aldrei fundist mikið varið í þessa Ítali. Kunna ekkert að höndla smá pressu. Það er í sama hverju það er, allt frá golfi yfir í fótbolta, alltaf sama sagan. En í staðinn fyrir að vera í Laugardalnum þá var ég á æfingasvæðinu okkar að horfa á æfingu hjá okkur. Ekki nóg með það að ég hafi horft á æfinguna einu sinni þá ákváðu þessir snillingar, þ.e. þjálfararnir, að taka upp æfinguna á video og létu okkur síðan horfa á hana alla á eftir. Mikið stuð að fá að glápa á sömu æfinguna tvisvar. Ég gerðist handboltasérfræðingur í gær. Það var verið að sýna frá Ólympíuleikunum í sjónvarpinu inni hjá sjúkraþjálfurunum og var fullt af fólki þar inni. Enginn skyldi neitt í því hvaða íþróttagrein væri verið að sýna frá fyrr en ég mætti og útskýrði fyrir fólkinu að þetta væri handbolti. Næstu mínútur fóru í það að útskýra reglurnar og segja þeim hvað við Íslendingar værum nú góð í þessari grein. Það hefði toppað þetta ef Ísland hefði verið að keppa. Það var loksins almennilegt veður í dag og það var ekki að spyrja að því. Ég var að sjálfsögðu mættur á sundlaugarbakkann með Da Vinci lykilinn og lá þar í dágóða stund og lét fara vel um mig. Á morgun er bara ein æfing sem er algjör snilld. Ég er hins vegar ekkert farinn að geta gert alltof mikið sem er ekki jafn mikil snilld. Þetta ætlar að taka ágætis tíma í að jafna sig og það verður víst bara að hafa sinn gang.
mánudagur, ágúst 16
Var að kaupa mér gemsa, nokkuð sáttur með að hafa drifið loksins í því. Þetta er lítill og nettur Samsung. Ég er loksins kominn með lithium batterý sem er stórbæting miðað við gamla nimmarann sem ég var með heima. Ég fékk hann fullhlaðinn sem er nokkuð sem ég er ánægður með. Hef aldrei skilið afhverju maður fær batterý sem er ekki fullt þegar maður kaupir og þarf síðan að bíða í hálfan dag eftir að geta farið að fikta. Núna er sem sagt hægt að ná í mig í síma 001-919-641-7710. Í morgun var æfing klukkan 7. Það var ekki alveg nógu góð tímasetning en þar sem gervigrasið er eina nothæfa æfingasvæðið hérna þá þurfa bæði kvenna og karla fótboltinn að deila því með ameríska fótboltaliðinu sem hefur forgang og taka þar af leiðandi aðaltímana. Sást samt til sólar í dag sem er gleðilegt.
sunnudagur, ágúst 15
Hérna er ennþá grenjandi rigning. Það varð nú ekkert úr því að Charley olli einhverjum vandræðum hérna, aðeins rok og mikil rigning enda fór hann ekki hérna beint yfir. Við erum alla vega farnir að æfa á fullu. Tvær æfingar á dag en ég er bara fyrir utan að skokka. Þegar strákarnir eru að taka endalaust af sprettum yfir allan völlinn þá er ég svo sem ekkert í neinum asa að byrjar aftur. Betra að fara ekki of snemma af stað :) Við neyðumst til að vera á gervigrasinu enda eru allir grasvellir rennblautir og ekki nothæfir. Mér líst reyndar ekkert á framhaldið þar sem að einhver verkfræðingur hér sá til þess að æfingasvæðið er staðsett neðst í brekku og því sé ég ekki fram á að hann verði þurr fyrr en 2 vikum eftir að það hættir lokst að rigna. Lítið hægt að gera núna sökum veðurs og því var gott að ég fékk góðan díl hjá Blockbuster, 16 dollarar fyrir eins mikið að leigðum spólum í heilan mánuð. Það verður því hægt að glápa nóg næsta mánuðinn enda nokkrar Steven Seagal myndir komnar út sem þarf að kíkja á. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|