Victor
Mættur aftur til USA
föstudagur, ágúst 27

Ég veit ekki hvort að ég hafi sagt það oft hérna en ég hef alltaf talið að þjálfarinn minn hérna sé svona nettur fáviti. Ég hef svo sem lent í nokkrum leiðindum við hann í gegnum tíðina þannig að ég var ekki alveg viss hvort að þetta væri einungis bundið við mig en núna hef ég fengið sönnun þess að hann er alvöru fífl. Það var þannig að við vorum á æfingu núna í vikunni og einn senter tekur við boltanum eftir langa sendingu og stendur á miðjum vellinum einn og óvaldaður. Þá ákveður þjálfarinn að stoppa leikinn þar sem honum þótti þetta alveg óviðunandi af varnarmönnunum. Hann öskrar yfir allan völlinn: ''Af hverju er enginn að dekka hann. Þetta er dvergur, hann er aumur og ef þið standið hliðin á honum hrynur hann niður'' . Við vissum ekki hvað var í gangi. Þarna rakkaði hann greyið strákinn niður fyrir það eitt að hafa gert vel. Þjálfarinn heldur kannski að svona byggi maður upp sína leikmenn.

Að öðru leyti er allt gott frétta. Ófeigur er mættur og við erum bara í afslöppun hérna. Við ætlum að reyna að kíkja í golf á morgun og jafnvel hinn líka. Skólinn byrjar rólega sem er alltaf ágætt.

posted at 7:41 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, ágúst 24

Æfing dauðans var í dag. Fyrsta æfingin sem ég tek að fullu þátt í og hún þurfti að sjálfsögðu að vera 3 tímar. Eftir venjulega æfingu tóku við endalaus suicide hlaup og síðan þar sem ég og nokkrir aðrir erum búnir erum búnir að vera meiddir þá fengum við að hlaupa aðeins meira og síðan beint upp í lyftingarsal. Með sjúkraþjálfuninni þá voru þetta um fjögurra tíma dæmi, eins gott að maður fái borgað fyrir þetta :)

Ófeigur kemur síðan á morgun. Það verður pottþétt stemmning hjá okkur. Ég er svona að reyna að gera allt tilbúið fyrir hann. Búinn að finna dýnu fyrir hann og þvo einhver rúmföt. Þetta ætti að vera orðið nógu gott fyrir hann.

posted at 8:06 e.h. by Victor

|

mánudagur, ágúst 23

Fyrsti skóladagurinn var í dag. Hann var nú ekki erfiður. Rétt bara svona verið að kynna mann fyrir prófessorunum og námsefninu. Þessi önn gæti nú orðið strembnari en upphaflega var planað. Það er búið að breyta um prófessora í 2 fögum og annar af þeim hef ég haft áður og hann lætur mann sko vinna.

Eftir tímana kíkti ég síðan í golf. Frábært golfveður. Rétt undir 30 stigum og lítill raki. Ég spilaði með einhverjum japönskum gaur sem er í laganámi hérna. Hann var nú töluvert betri en ég þó að ég hafi nú staðið mig ágætlega. Ef þetta heldur svona áfram þá geta ákveðnir menn alveg gleymt því að vinna mann. Bara að það væri ekki orðið dimmt rétt eftir 8 þannig að hægt væri að spila lengur en maður fær víst ekki allt.

posted at 8:58 e.h. by Victor

|

sunnudagur, ágúst 22

Pre-season búið, en yndislegt. Það kláraðist reyndar fyrir mig eiginlega á föstudaginn þar sem laugardagurinn var frí og í kvöld er leikur sem ég spila ekki sökum meiðsla. Ekki að þetta hafi verið eitthvað erfitt en það er bara pirrandi að þurfa að vera í kringum þjálfarana allan daginn, alla daga.

Í gær var bara afslöppun, þ.e. ég gerði ekkert of mikið. Við redduðum okkur reyndar sófa inn í íbúðina, fengum hann á 45 dollara, fínn díll þar. Þegar ég stóð í þessum stórinnkaupum hringdi kappinn einmitt og var gaman að heyra í honum. Hann er að mygla yfir einhverjum próflestri þessa dagana. Ófinn er einmitt í sama pakka þessa dagana en hringdi einmitt líka. Ég fór síðan aðeins á golfvöllinn og ætlaði að slá nokkrum boltum. Ég var rétt byrjaður þegar það fór að hljóma í einhverjum þrumum og svæðinu því lokað, ekki alveg nógu gott. Víst það var nú laugardagskvöld þá var um að gera að fara út að borða og kíkja aðeins út á lífið. Ég fór að stað sem kallast George´s Garage. Það voru mikil mistök. Stóð í hurðinni þegar þeir ætluðu að rukka 10 dollara fyrir að fara inn. Það kom eitthvað hik á kappann og var svona að hugsa málið, hvað væri rétt að gera, en þá kom 200 kílóa svartur risi og spurði hvort að ég væri með einhver vandræði. Hvað gerir maður í þessari stöðu. Jú, maður bara borgar og drullar sér inn. Þarna var bara local lið þannig að stemmningin var ekkert sérstök. Rölti þaðan yfir í alvör college partý þar sem fólkið stóð og drakk ódýran bjór og spilaði hinn mjög svo skemmtilega leik beer pong og þar dó kvöldið hægt og rólega út.

Ég vaknaði svo í morgun og þá fékk maður það beint í æð að maður er mættur aftur til Bandaríkjanna. Kíkti á póstinn og fékk svona eitt klassískt e-mail:


NOTICE
TO: ALL RESIDENTS OF CENTRAL CAMPUS APARTMENTS
BE ON THE LOOKOUT
At approximately 9:19 PM on Saturday, August 21, a delivery person was robbed at gunpoint on Central Campus. This occurred near the corner of Anderson and Yearby.
DUPD has released a description of the suspect and is currently putting together a composite which will be posted throughout campus ASAP. The description is as follows:
BLACK MALE
MID 20¹S IN AGE
SMALL MUSTACHE
WITH THICK, SHORT, DARK HAIR
The suspect was wearing a BLUE & RED SPORTS JERSEY with NAVY SHORTS.
If you have information that might help locate this suspect, CALL DUKE POLICE AT 684-2444.
As a reminder, please continue to practice prudent general safety precautions including:
1. Always keep your entrance doors and windows locked and your sliding glass doors secured with the lock and the security sticks that have been provided.
If you have locks that are damaged or in need of repair, or you have misplaced your security stick, please contact the Central Campus Service Office at 684-5813.
2. Remember to keep your front entrance lights and patio lights on at all times. This provides additional lighting throughout the apartments complex.
3. Walk with another person whenever possible, especially after dark.
4. After dark, use-well lit sidewalks when walking around campus.
5. Be alert to your surroundings at all times.
6. If you see ANY suspicious persons or behavior please do not hesitate to report them to DUPD immediately by phoning 684-4444 or 911 from any campus phone.

Svona er að lifa í gettóinu, það er ekki alltaf dans á rósum.

Í kvöld er síðan fyrsta fótboltapartýið. Þar verða nýliðarnir vígðir, held að það eigi að snoða þá og mér skilst að það sé búið að kaupa ógrynni að áfengi og þeir eigi ekki að komast út nema skríðandi. Það verður þá gaman fyrir þá að mæta í fyrstu tímana sína í háskóla á morgun.


posted at 1:44 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast