
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, september 17
Fyrir ári síðan var ég á leiðinni heim. Ég flaug heim beint í afmælið hjá pabba sem er einmitt á morgun og síðan leit ég við í brúðkaupið hjá Bjössa og Maríu. Mjög vel heppnuð helgi. Ég óska hér með pabba tilhamingju með afmælið á morgun og Bjössa og Maríu tilhamingju með brúðkaupsafmælið. Bara svo ég gleymi þessu ekki. Þrumur og eldingar í Durham. Leifarnar af Ivan eru núna að koma yfir okkur hér í Norður-Karólínu. Ég veit ekki hvort að þetta heitir hitabeltisstormur núna en það rignir endalaust og allir tröppur hérna eru eins og litlir fossar. Ég efa að það verði æfing í þessu veðri. Reyndar má ekki vera æfing meðan að það eru þrumur og eldingar af augljósum ástæðum. Ég er nú ekki alveg með töluna á hreinu en þetta er alla vega þriðju fellibylurinn sem gengur yfir og það er víst nýr að myndast einhverstaðar fyrir sunnan Flórída. Pant ekki eiga heima á þar. Allir elsta árs nemar eru núna að missa sig í atvinnuleitum. Ætli maður reyni ekki aðeins að vera með í þessu, bara svona til þess að skoða úrvalið. investment-banking er það sem margir eru svo æstir í að komast í. Ekki vegna þess að það er gaman heldur af því að þeir borga vel. Hins vegar er vinnutíminn fáranlegur. Þekki eina stelpu sem kláraði í fyrra og fór í það. Vinnan er frá 8 um morgun til 11 um kvöldið. Spennandi. Jæja, það er ekki búið að senda email um að æfingu sé frestað þannig að ég verð að þjóta.
þriðjudagur, september 14
Helgin endaði á því að vera nokkuð skemmtileg. Columbia University var í heimsókn en það eru 2 Íslendingar í liðinu þeirra. Annar, Einar heitir sá, var með mér í HK í sumar. Þarna hitti ég loksins þjálfara þeirra, Dieter Ficken kallinn, en ég og hann töluðumst nokkrum sinnum saman á sínum tíma enda var ég næstum því búinn að enda hjá honum í Columbia. Ekki merkilegt samtal reyndar. Þegar það kom í ljós að þeir ættu ekki flug heim fyrr en á sunnudegi þá var að sjálfsögðu ákveðið að reyna að hittast á laugardagskvöldinu, þ.e. ég og Einar. Ég ætlaði að sýna honum hið magnaða næturlíf í Durham. Eitthvað fílaði Dieter það ekki og bannaði það en hver er svo sem að láta eitthvað svoleiðis smáatriði stoppa sig. Það var því bara ákveðið að hann myndi bara lauma sér útaf hótelinu og ég kæmi að sækja hann. Hann gerði það ásamt fjórum öðrum liðsfélögum sínum og tróðu þeir sér allir inn í Geo-inn sem er nú ekki sá plássmesti. Bara meiri stemmning yfir því. Jæja, þeir komu allavega með okkur í partý og svo inn á einn af skemmtistöðunum hérna og held ég að þeir hafi bara skemmt sér vel. Ég veit ekki enn hvort að eitthvað komst upp um þá en þeir fóru ekki fyrr en rétt fyrir 5 aftur upp á hótel og það var víst æfing hjá þeim klukkan 10. Stuð. Ég þarf að hringja í Einar og fá að vita hvernig þetta endaði allt. Hvernig sem það nú fór allt þá var þetta bara vel heppnað, það er fyrir öllu. Annað var það ekki að sinni. Nenni ekki að skrifa mikið þar sem klukkan er orðin alltof margt og ég er búinn að vera að læra alltof og lengi. Bara að ég hefði notað helgina betur í þetta. En mér datt svona í hug að láta einn af gullmolum Coach Rennie´s fljóta hérna með. Hann var að fara yfir lið andstæðingana og hafði þetta að segja um einn leikmann þeirra. ''#8 is fat, slow and out of shape. #8 is one hell of a player though'' Já, það er stundum erfitt að skilja ruglið í honum kallinum. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|