
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
fimmtudagur, október 7
Þá er loksins komið Fall Break. Engin skóli á morgun hjá mér og því enginn skóli fyrr en á miðvikudaginn. Þetta er mjög kærkomið frí. Á morgun er stór dagur. Ég fór með bílinn í skoðun og þeir ætluðu að athuga hvað það kostar mikið að koma honum í gegnum hana. Vonandi verður það ekki of mikið en gaurinn sem rekur verkstæðið er Duke soccer aðdáandi þannig að hann gæti mixað þetta fyrir mann. Það byrjaði samt ekki vel í dag. Þeir ætluðu að mæla útblásturinn eða eitthvað svoleiðis en pústið var orðið svo lélegt að það kom ekkert þar út lengur og því ekki hægt að mæla það. Svo er það bara New York á laugardaginn. Flug klukkan 6:30 á laugardagsmorgun þannig að við ættum að vera lentir um 8. Ég kveð því að sinni og kem tilbaka á mánudaginn með glóðvolgar ferðasögur. Vonandi sleppur eitthvað af því í gegnum ritskoðun :) Að lokum eru hér 2 ágætis myndbönd sem hægt er að skoða af Bush og Kerry.
mánudagur, október 4
Þá er afmælisdeginum mínum loks lokið. Það er búið að vera mikið um símtöl og email í dag og þakka ég öllum fyrir sem mundu eftir þessum merkisdegi. Aðrir eru á svarta listanum. Íbúðin mín fylltist af fólki í gærkveldi um miðnætti og var skálað í kampavíni og fékk ég síðan smá djók gjöf frá krökkunum. Stóra mynd af þjálfaranum og teygjubyssu til að skjóta hann. Ég dúndraði nokkrum skotum á hann :) Þetta heppnaðist allt bara vel. Ég bætti nokkrum myndum við í safnið. Þessi vika verður síðan í þægilegri kantinum og síðan er það NY um helgina. Við unnum UNC í hörkuleik fyrir framan 6000 áhorfendur. Nige skoraði 2 mörk í 3-2 sigri. Það var ágætt fyrir hann þar sem að það var næstum því búið að henda honum út úr liðinu eftir að hann mætti ekki á æfingu á föstudaginn. Fyrirliðarnir stoppuðu það en þjálfarinn mælti með við þá að honum yrði hent úr liðinu.
sunnudagur, október 3
Þá fer senn að líða að afmælisdeginum mínum. Þetta er búin að vera sannkölluð afmælishelgi sökum þess að ég ákvað að halda upp á þetta á föstudaginn þá eru allir búnir að vera að óska mér til hamingju alla helgina. Ég fæ líklega sama pakkann síðan á morgun þegar alvöru afmælið mitt er. Föstudagskvöldið heppnaðist mjög vel og voru allir mjög sáttir. Ég setti myndir af öllu saman á netið. Eftir matinn þá fékk ég far í Audi TT sem Antoine er með í láni frá prinsessunni af Katar (Þær eru víst 2 hérna en búa í risahúsi fyrir utan bæinn með nokkra starfsmenn í kringum sig, kokk, öryggisvörð o.fl). Það var ekkert að því að bruna á þessu á hraðbrautinni með blæjuna niðri og Bon Jovi í botni :) Við vorum svo uppteknir við sönginn að við gleymdum afleggjaranum af hraðbrautinni. Á laugardeginum kíkti ég síðan á amerískan fótboltaleik. Ótrúlegt en satt þá unnum við en þetta voru víst 2 lélegustu liðin í landinu að takast á og við því núna næst lélegasta liðið. Ég kíkti aðeins á tailgat-ið en ég mætti rétt fyrir 4 og höfði krakkar þá búnir að vera að drekka síðan að hádegi. Staðurinn var orðinn frekar skítugur en fólk í góðu stuði. Enginn á leiðinni á leikinn reyndar. Það er samt góð stemmning á campusnum þegar leikir eru í gangi. Fullt af Duke-aðdáendum frá Durham og nágrannabæjum mæta og þegar við vorum á æfingu klukkan 11 um morguninn þá var fólk mætt með stóla, borð og grill en leikurinn byrjaði síðan klukkan 2. Stærsti leikur ársins er um í kvöld þegar við spilum við erkióvinina í UNC. Ég býst við því að það verði full stúkan og því nálægt 5000 manns sem ættu að mæta. Þjálfararnir eru alveg að missa það þessa dagana. Stressið að fara með þá. Nige ákvað á föstudaginn að hann nennti ekki á æfingu og tilkynnti sig veikann. Rennie varð alveg brjálaður og munaði litlu að hann myndi henda honum úr liðinu. Hann mælti með því við fyrirliðana en þeir töldu það full gróft þannig að hann slapp. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|