
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, október 15
Atvinnuviðtalið gekk bara ágætlega, held ég. Hef reyndar ekkert heyrt í þeim. Kannski þetta hafi bara ekkert gengið svo vel, jafnvel að maður hafi bara klúðrar þessu. Ég er kannski blindaður af því að ég náði að leysa einhvað dæmi fyrir framan þá að ég hélt að mér hafi gengið vel. Þetta er alla vega búið nema þeir hringi og bjóði mér í aðra umferð í viðtölum. Þá þyrfti ég væntanlega að fljúga til NY eða keyra til Charlotte. Ég hugsa að það hafi verið ágætt að prófa þetta, hvernig sem þetta fer. Fullt af steiktum spurningum sem maður þarf að svara og reyna að sannfæra þá um af hverju þeir ættu að velja mann frekar en einhverja aðra. Antoine, hér að ofan til hægri, fékk vinnu hjá Citygroup í vikunni. Hann fær 8000 dollara í signing bonus þannig að við þurfum að vera dugleg að hjálpa honum að eyða því. Á morgun ætla ég síðan til Greensboro. Sólveig bauð mér að koma að horfa á PGA mót sem er þar í gangi núna yfir helgina og síðan í mat eftir það. Það verður eitthvað af hetjum þarna, ekki alveg viss hverjir.
þriðjudagur, október 12
Allt að gerast þessa dagana. Ég komst í atvinnuviðtal hjá Bank of America og fer í það á morgun (miðvikudag). Það verður spennandi að sjá hvernig þetta fer, hvort ég komist í aðra umferð. Þetta er í fyrsta skipti sem ég fer í svona viðtal hérna úti þannig að ég býst nú ekki við miklu þar sem ég held að stór hluti af þessu sé æfing. Aðrar gleðifréttir. Bíllinn komst í gegnum skoðun og þurfti einungis að gera við hann fyrir 150 dollara sem var u.þ.b þrefalt lægra en ég hafði þorað að vona. Hann er seigur, það verður ekki annað sagt og sé ég núna fram á að hann dugi mér bara út skólaárið.
mánudagur, október 11
Ég er kominn tilbaka eftir vel heppnaða ferð til New York. Ferðin byrjaði nú ekki alltof vel. Ég vaknaði eldsnemma á laugardagsmorgni og fyrsta verkið var að vekja herbergisfélagann sem ætlaði með mér. Hann snér sér hins vegar bara við og sagðist ekki ætla að fara. Ég vissi svo sem ekki hvað var í gangi en lét þetta ekki stoppa mig og dreif mig bara. Á flugvellinum ákvað ég til þess að þurfa ekki að bíða eftir farangrinum í NY að tékka ekki farangurinn inn og taka hann bara frekar með mér sem handfarangur. Ég gleymdi hins vegar að ég var með svissneska vasahnífinn minn í snyrtitöskunni. Þeir tóku að sjálfsögðu eftir honum þegar ég fór í gegnum öryggishliðið. Ég átti núna 2 kosti. Annaðhvort myndu þeir taka hann eða ég færi fram að afgreiðslu og sendi sjálfum mér hann. Ég ákvað að best væri að senda mér hann en þegar ég komst að því að ég myndi þurfa að bíða aftur í röðinni til þess að fara öryggishliðið þá vandaðist málið. (Hann var ekkert rosalega liðlegur gaurinn sem ég talaði við) Ég var nú þegar búinn að bíða í hálftíma áður og röðin var orðin lengri en þegar ég var þar og það var bara hálftími í flugið. Ég neyddist því til að láta þá taka hann. Helvítis klúður. Mig langaði að rífa aðeins kjaft við gaurinn en þar sem hann hefði eflaust getað haldið mér þarna lengur ef honum sýndist þannig að ég myndi missa af fluginu ákvað ég að sleppa því. En eftir þessa brösóttu byrjun var ferðin bara upp á við. Ég nenni ekki að fara í smáatriði hvernig þetta var. Ég og Scott Siegel, liðsfélagi minn, röltum um bæinn á laugardeginum. Um kvöldið hitti ég síðan Herdísi frænku og kærastann hennar en þau eru bæði að læra í Columbia Unv. og síðan hitti ég Einar, sem er einnig í Columbia, fékk ég að gista hjá honum. Hann sýndi mér aðeins næturlífið í NY og daginn eftir skoðaði ég bæinn betur en einhvern smá hluta af honum þar sem tíminn var takmarkaður. Til þess að sjá sem mest af honum þá ákvað ég að kíkja á útsýnispallinn á Empire State og var eins og hálfs tíma biðin eftir því alveg þess virði. Ég kíkti síðan á staðinn þar sem WTC var og eru þeir byrjaðir að byggja nýja Frelsis turninn þar. Ég er svo núna mættur aftur í stemmuna í Durham. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|