
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, október 22
Vikan er loks á enda sem í þessu tilviki er mjög gott. Lítið sofið þessa vikuna og lítið gert annað en lært sökum þess að það voru 2 próf. Þau er nú búin og gengu bæði bara ágætlega. Liðið er að fara til Charlottesville, Virginia í dag. Leikur annað kvöld gegn Univ. of Virginia. Ég hef ekki margt merkilegt að segja annað en að það er allt búið að vera brjálað á síðum skólablaðsins (The Chronicle). Í framhaldi af ráðstefnu Palestinian Solidarity Movement þá skrifaði einn strákur grein í blaðið sem hann kallaði ''The Jews'' og fór það mjög í brjóstið á gyðingasamfélaginu hérna. Hann er þarna á gráu svæði og talar um margt sem ''má ekki'' tala um. Athylglisverð grein og meira að segja forseti skólans ákvað að skerast í leikinn og svara þessu. Greinarnar sem hafa fylgt í kjölfarið á þessu er orðnar fjölmargar og er hægt að skoða þær hér. Jæja, best að koma sér af stað. Einkar óspennandi helgi framundan sem mun einkennast af því að sitja í rútu og hanga inni á hótelherbergi.
þriðjudagur, október 19
Ákvað að deila þessari mynd með lesendum. Ég var að fá hana senda frá Sólveigu rétt í þessu. Frá vinstri: Egill, ég, Daniel, Sólveig, Birgir Hraf sem er í VTech, P.J. félagi Birgis og Jim.
mánudagur, október 18
Hvað er búið að gerast síðustu daga. -Ég fór á PGA mót á laugardaginn eins og ég minntist á síðast. Það var ágætt að kíkja á það, engin rosa stemmning svo sem að horfa á þetta, sérstaklega þar sem ég þekkti ekki nógu marga. Parnevik var búinn að spila þegar ég kom en hann var á æfingasvæðinu þegar ég rölti þar framhjá. -Við töpuðum okkar öðrum leik á þessu ári um helgina og erum því dottnir af efsta sæti ranking listans. Egill og félagar í UNCG halda hins vegar ótrauðir áfram og vinna allt og eru nú efstir á listanum sem sjá má hér. -Um helgina var einnig PSM (Palestininan Solidarity Movement) ráðstefna og voru gyðingarnir og íhaldsseggirnir hérna alveg brjálaðir yfir því að það hafi verið leyft. Öryggi var hert til muna á campusnum en þetta fór á endanum allt friðsamlega fram. -Fyrir hafnaboltaaðdáendur þá er spennan að magnast hérna. Boston Red Sox eru búnir að minnka muninn í viðureigninni við NY Yankees niður í 3-2 eftir að hafa unnið síðustu tvo leiki. Ég hef nú ekki nennt að horfa á þetta þar sem áhuginn er takmarkaður og síðustu tveir leikir hafa tekið fimm á hálfan klukkutíma. En ég kíki svona af og til og sér stöðuna sérstaklega þar sem ég er að læra fyrir 2 próf sem eru í vikunni og geri því margt til að komast hjá því. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|