Victor
Mættur aftur til USA
laugardagur, nóvember 6

Senior night var í gærkvöldi, þ.e. síðasti heimaleikur ársins. Þetta er að öllu leyti venjulegur leikur nema að senior-arnir eru kynntir fyrir leikinn og þakkað fyrir. Við unnum leikinn sem var gegn Wake Forest 3-2 sem var ágætt þar sem minn árgangur hafði tapað síðustu 6 viðureignum við þá. Eftir leikinn þá héldum við Nige smá partý í íbúðinni. Við vorum ekki alveg vissir um hvernig það myndi takast en það endaði á því að vera algjör snilld. Þetta var blanda af Könum og alþjóðastúdentum. Ég tók stjórn á tónlistinni og fólk fór að hrúast á dansgólfið, reyndar nánast bara alþjóðastúdentarnir. Kanarnir horfðu á okkur vitleysingana en það höfðu allir gaman. Ekki jafn gaman að þrífa íbúðina í dag en það verður að hafa það. Ég tók nokkrar myndir af öllum þessum ósköpum og er hægt að skoða þær hér.

posted at 3:28 e.h. by Victor

|

miðvikudagur, nóvember 3

Þá eru kosningarnar loksins búnar. Þetta fór nú ekki alveg nógu vel fyrir Bandaríkin og heiminn allann að mínu mati en Bush fékk alla vega meiri hluta atkvæða núna. Það voru núna um 13 milljónir fleiri manns sem kusu heldur en fyrir 4 árum enda búin að vera mikill áróður í fjölmiðlum að fá fólk til að kjósa. Kosningaþátttaka hér í Norður-Karólínu slefaði upp í 75% sem telst bara mjög gott. Demókratar misstu einnig þingmenn þannig að þetta var ekki góður dagur fyrir þá. Hvað ætli fréttamenn geri núna? Þetta er búið að taka ár eða frá því að demókratar fóru að velja sinn kandídat. Þeir finna eitthvað, ég hef engar áhyggjur af því. Ef það kemur einhver þurrð þá er alltaf hægt að kæra Michael Jackson og hafa smá sirkus út úr því.

Síðasti heimaleikurinn er á föstudaginn. Þessu fer nú senn að ljúka sem er frekar skrítið að hugsa til. Það er samt ágætt. Þetta er komið gott.

posted at 9:46 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, nóvember 2

Nóvember byrjaði með krafti. 30 stiga hiti í gær og ég þurfti að finna stuttbuxurnar aftur. Þær voru reyndar ekki komnar neitt alltof neðarlega í skúffuna. Kannski þetta veður sé til þess að drífa almenning hérna til þess að fara að kjósa.
Ég hjálpaði til í baráttu Kerry´s í dag þegar ég keyrði Dan á kjörstað til þess að hann gæti nú gefið honum atkvæði sitt. Verst að atkvæði demókrata í Norður-Karólínu verða væntanlega á endanum tilgangslaus þar sem þetta er Red-Neck ríki og repúblikanar vinna alltaf hérna og fá því alla kjörmenn fylkisins. Það er því ekki alveg hægt að segja að hvert atkvæði telji. Colorado er að kjósa um hvort að það eigi að breyta þessu og ef það nær í gegn þá myndi sá sem fær 60 prósent atkvæða fá 60 prósent kjörmanna o.s.frv. Það lítur samt út fyrir að það nái ekki í gegn þar, þar sem þá finnst því fylki vægi þess minnka. Þetta myndi samt koma í veg fyrir að forseti kæmist til valda með minni hluta atkvæða. Ætli ég horfi ekki á þegar úrslitin fara að streyma inn en það búast reyndar fáir við að þessu ljúki í dag og má búast við endurtalningu og ýmsum lagaflækjum á næstu dögum. Nú þegar fullt af utankjörfundar atkvæðisseðlum týndir o.s.frv. Þetta frá landinu sem telur sig vera númer eitt í heiminum.

posted at 9:28 f.h. by Victor

|

sunnudagur, október 31

Það gekk ekki alveg nógu vel í Columbus, S.C. Við töpuðum fyrir The South Carolina Gamecocks 1-0 í frekar ómerkilegum leik. Leikurinn var klukkan 2 um daginn og því mjög heitt. Þetta var eins og fyrir rúmum mánuði hérna.
Klukkunni var breytt að miðnætti í gærkvöldi. Það þýddi auka klukkutíma í svefn sem er alltaf vel þegið. Í kvöld er svo Halloween. Allir í rosa stuði en ég ákvað að beila á þessu. Nennti ekki að gera neitt eftir 4 tíma rútuferð og síðan er skóli á morgun. Talandi um skóla þá var ég að skrá mig í tíma fyrir næstu önn. Það stefnir allt í að það verði enginn tími á föstudögum og ekki tími fyrr en hálf fimm á mánudögum þannig að helgarnar verða langar. Ekki ætla ég að kvarta yfir því.

posted at 8:59 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast