
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
laugardagur, nóvember 20
Alltaf gaman að kveikja á tölvunni á laugardögum og sjá að ManUtd vann. Skemmir ekki fyrir að Arsenal gerði jafntefli. Núna þarf bara aðeins að fara að hægja á Chelsea. Síðasti heimaleikurinn í ameríska fótboltanum í dag. Erkióvinirnir í UNC eru mættir. Það er alveg hægt að sleppa því að keyra um campusinn enda alltof mikið af bílum. Það var æfing í morgun kl.10 og það tók mig um hálftíma að komast þangað sem annars er um 5 mínútna akstur. Fólk var mætti fyrir 10 á pick-up trukkunum með country-tónlistina, byrjað að grilla og með kaldan Bud-Light sér við hlið. Þetta er nokkuð skemmtileg stemmning. Fullt af fólki hópar sig saman og situr, borðar og spjallar saman tímunum saman. Síðan kíkir það kannski svona í seinni hálfleik á leikinn eftir því hvort að hann er eitthvað spennandi. Ef við erum að vinna þá kíki ég nú líka. Markstangirnar verða rifnar niður og kveikt í þeim. Þangað til þá hangi ég bara hérna enda búinn að finna fullt af góðum tölvuleikjum. :)
miðvikudagur, nóvember 17
Það er kominn vetur hérnaí Norður-Karólínu. Laufblöðin dottinn af trjánum og það er farið að vera skelfilega kalt hérna á kvöldin eða um leið og sólin sest. Það er orðið dimmt upp úr 5:30 sem þýðir að seinni hlutinn af æfingunum okkar er orðið vel kalt, sérstaklega þar sem æfingarnar okkar eru hægar og leiðinlegar sem hjálpar ekki til að halda á manni hita. Ég hef neyðst til þess að nota úlpuna mína ef ég þarf að fara eitthvað að kvöldin eða snemma morguns sem var ekki planið. Hún átti að vera innst inni í skáp í vetur. Það er núna komið á hreint að ég flýg heim 10.des. Ég vil biðja fólk að vera tilbúið með veisluhöld þegar að þessu kemur. Síðasta próf klárast klukkan 22:00 daginn áður þannig að það er bara að henda ofan í töskuna strax eftir það og koma sér út á flugvöll. Ég kem síðan aftur út 9.janúar ásamt Ófeigi. Það er núna orðið pottþétt að hann verður úti sem skiptinemi næstu önn og fljúgum við því saman og síðan skutla ég honum í skólann hans nokkrum dögum seinna.
þriðjudagur, nóvember 16
Helgin var mjög skemmtileg. Ég fór til Kiawah eyju sem er í Suður-Karólínu ásamt 5 öðrum. Þetta kom óvænt upp. Mér var boðið á miðvikudagskvöldinu og ég ákvað að skella mér. Við lögðum af stað upp úr 5 á föstudeginum eða þegar allir voru búnir í tímum. Þetta var alþjóðlegur hópur sem þarna var á ferð. Einn Íslendingur, einn Austurríkismaður, tveir Þjóðverji, ein ensk/spænsk stelpa og síðan Kani sem var gestgjafinn. Þetta var um 5 tíma keyrsla og var þröngt á þingi í bílnum en þetta hafðist allt og allir voru sáttir þó að það hafi tekið nokkrar mínútur að finna fyrir löppunum eftir að við komum á áfangastað. Við gistum í húsi á þessari eyju en í svona 30 mínútna fjarlægð frá henni er gamall bær sem heitir Charleston og eyddum við ágætis tíma þar. Sá bær er ótrúlega flottur og ólíkur öðrum amerískum bæjum sem ég hef séð. Hann er frægastur fyrir þrælasölu. Það var róleg stemmning yfir þessu. Við skoðuðum bæinn, borðuðum og slökuðum á. Því miður var full kalt þannig að það var ekki hægt að fíflast í sjónum eða liggja í sólbaði á ströndinni. Húsið sem við gistum í var ótrúlega nett enda á fólkið nóg af seðlum. Pabbi stelpunnar sem bauð okkur er umboðsmaður Michael Jordan´s þannig að hans prósenta er ágæt. Þau eru að byggja nýtt hús við hliðin á gamla sem verður ennþá svalara en þetta var alveg vel boðlegt :) Hægt er að skoða nokkrar myndir frá helginni hér.
sunnudagur, nóvember 14
Kominn tilbaka eftir gott ferðalag. Skóli á morgun þannig að ég ætla að drífa mig í svefninn. Kem með ferðsasöguna á morgun ásamt eitthvaða af myndum. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|