
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
fimmtudagur, nóvember 25
Kalkúnninn var ekkert smá góður hjá Sólveigu. Ég er nú ágætis kokkur en ég hef ekki borðað svona góðan mat síðan síðasta sumar. Þetta kemur manni í gírinn fyrir áthátíðina í desember. Maður fær svona nasaþefinn af því sem koma skal. Þetta var tvískiptur hópur, annars vegar krakkar undir 25 og svona fólk yfir 55 þannig að þetta endaði á því að við ungu vorum saman í stofunni að spjalla enda allir Íslendingar. Þarna var Egill mættur, Vilborg kærasta hans, Róbert sem býr hérna í nágrenninu og svo ég. Núna eru rétt um tvær vikur í flugið heim. Reyndar 4 próf og tvö lokaverkefni áður en að því kemur þannig að það verður nóg að gera. Ætli það sé því ekki kominn tími til að hætta að slaka á núna og koma sér að verki.
þriðjudagur, nóvember 23
Thanksgiving fríið byrjað. Engin skóli fyrr en á mánudaginn. Þetta var ljúft. Þarf nú eitthvað að læra þar sem það eru lokaverkefni og fyrirlestur sem ég þarf að skila í næstu viku. 15 mínútna fyrirlestur um Ozone as disinfectant in water treatment. Það verður spennandi hvernig ég næ að fylla út þann tíma. :) Spennandi ekki satt. Að öðru leyti verður reynt að slaka á yfir þessa daga. Ég fer til Sólveigar í Greensboro í mat á fimmtudaginn. Sekkurinn segir ekki nei við ljúfengum kalkún og öllu meðlætinu. Þar er hann í góðum gír.
mánudagur, nóvember 22
Duke skíttapaði þessum leik á laugardaginn. Þeir áttu aldrei sjéns og enduðu því tímabilið með 2 sigra. Þetta var reyndar ekki eins og að vera á heimavelli því að stuðningsmenn hins liðsins, UNC, voru í miklum meirihluta og var völlurinn troðfullur og þvi eitthvað yfir 30 þús. manns. UNC er miklu stærri skóli og flestir sem búa í nágrenninu halda með honum enda Duke svona nett óvinsæll af local liðinu. En þar sem mér er alveg sama um ameríska fótbolta þá var ég ekkert að pirra mig á þessu. Ótrúlegt samt hvað þeir eyða miklum pening í liðið og árangurinn enginn. Hótelgisting fyrir alla leiki, glænýtt hús sem er með litlum innivelli, leigja flugvélar til að ferðast í útileikinu, 65 fullir skólastyrkir o.s.frv. Ég fór síðan á laugardagskvöldið að sjá National Treasure. Þetta átti að vera svona Da Vinci Code/Angels and Demons/Indiana Jones mynd og lofaði því góðu fyrirfram. En sökum þess hve hún er einstaklega klisjuleg og Hollywoodleg þá misheppnaðist þetta og get ég ekki mælt neitt sérstaklega með henni. Engin hörmung samt og ef maður veit af göllunum fyrirfram þá er eflaust hægt að hafa gaman af. Bara 2 skóladagar í þessari viku. Thanksgiving fríið byrjar á miðvikudaginn. Ég verð bara hérna í Durham býst ég við. Engin endurtekning á Clemson ferðinni frá því í fyrra enda myndi sama stemmning og þar var ekki nást aftur og fortíðardraugurinn myndi draga aftur úr stuðinu í ár. Ég kíki kannski til Greensboro á fimmtudaginn í mat hjá Sólveigu og Jim. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|