
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, desember 3
Íslendingur er kominn í úrslitaleikinn í háskólakeppninni hérna úti, NCAA. Gunna og félagar í Notre Dame unnu Unv. of Santa Clare í kvöld 1-0 í hörkuleik. Margir mjög góðir leikmenn í báðum liðum. Þetta eru náttúrulega frábær úrslit. Úrslitaleikurinn er núna á sunnudaginn þannig að það verður spennandi að sjá hvort þær vinni þetta. Ég mætti að sjálfsögðu á leikinn með íslenska fánann að styðja við bakið á henni og hitti þar foreldrana sem voru mættir alla leið frá Íslandi. Ég gæti þurft að horfa á úrslitin í sjónvarpinu þar sem það er próf á sunnudeginum. Að öðru leyti lítið að segja. Ég náði að klára öll lokaverkefnin í vikunni og núna tekur próflærdómurinn við. Ég fer því núna að loka mig inni á bókasafni í nokkra daga. Verð síðan kominn heim eftir viku þannig að þetta er ekki svo slæmt.
miðvikudagur, desember 1
Ég fór í golfpróf í morgun. Reglupróf. Þetta var aldeilis strembið. Tók heilar 15 mínútur. Það hjálpaði aðeins til að kennarinn boðaði alla í smá upprifjun á mánudagskvöldið síðasta þar sem farið var yfir eitthvað af prófspurningunum og svörum við þeim. Bara að þetta verði svona í næstu viku í lokaprófunum. Hæpið. Ég hélt síðan fyrirlestur í dag. Held að það hafi bara gengið ágætlega. Ég skildist alla vega, held ég, og náði að tala í allar 15 mínúturnar sem við höfðum til umráða. Síðasti skóladagur á morgun. Ég held að ég mæti nú ekki í neinn tíma. Töl og líkindafræði er eina fagið á morgun og það er bara of leiðinlegt til að maður nenni að mæta í það. Læri frekar bara, eða ekki.
sunnudagur, nóvember 28
Önnur misheppnuð bíóferðin í röð. Ég fór að sjá Alexander mikla. Þvílík leiðindi. Ég hélt hún ætlaði aldrei að enda. 3 klukkutímar af lífi mínu sem ég fæ aldrei aftur. Heill dagur að hlusta á Gunna Skarp hefði verið sneggri að líða. Ég hefði átt að labba út um leið og ég sá eineygðan Val Kilmer á skjánum. Boðaði ekki gott. Sem betur fer er ódýrt í bíó hérna miðað við heima eða rétt um 400 kall. Það gerir þetta aðeins skárra. Ég vil bara biðja fólk um að sjá þessa mynd ekki. Svo við snúum okkur að einhverju skemmtilegra þá lét ég loksins verða af því að kaupa mér almennilega hátalara. Ég get því farið að yfirgnæfa reggae tónlistana frá herbergisfélaganum eftir að hafa neyðst til að hlusta á það í 3 ár. (fíla nú orðið eitthvað af því) Það hentaði vel að U2 gaf út nýjan disk á sama tíma þannig að ég hef eitthvað til þess að spila. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|