
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
föstudagur, janúar 21
Þá er komið að því. GRE prófið er að hádegi á morgun, laugardag. Ég þarf að ferðast í hálfgert gettó til að taka það en prófið er tekið í N.C. Centra Unv. sem er ekki á skemmtilegasta stað bæjarins. Þetta ætti samt að vera í góðu lagi um hábjartan dag. Ég var rétt í þessu að koma úr kvöldmat af WaDuke Inn. Við vorum að kveðja Tundei sem var að klára Ph.D. og er nú að flytja til Suður Afríka. Ég á örugglega ekki eftir að sjá hann aftur sem er skrítin tilhugsun en það mun nú væntanlega vera svo með flesta sem maður kveður í maí. Kannski á re-union eftir 20 ár. Nú er það bara að fara yfir orðalistana einu sinni í viðbót og þá ætti þetta að vera komið gott.
miðvikudagur, janúar 19
Þar sem það er ekkert spennandi að gerast hjá mér þessa dagana þá ætla ég aðeins að tala um veðrið. Það snjóaði í dag og eins og ég hef talað um áður þá veldur það ávallt miklum vandræðum hér þó að snjómagnið sé rétt nógu mikið til þess að hylja jörðina. Árekstrar eru komnir vel á annað hundraðið enda kann fólk hérna lítið að keyra við þessar aðstæður og bílarnir yfirleitt á sumardekkjum. Krakkar sem búa fyrir utan campus (5 mínútna akstur) tilkynntu kennurum að þeir treystu sér ekki í skólann (þ.e. nenntu ekki) og meira að segja taxar hættu að ganga. Allt óvíst með tíma á morgun að sjálfsögðu. :) Það styttist síðan í GRE prófið. Ég er enn að reyna að læra ný orð. Reyni að fara yfir svona 100 orða á dag en ég held að það tolli lítið sem ekkert af þessum orðum uppi hjá manni. Svo þegar þetta próf er búið þá þarf að fara að íhuga að alvöru hvað skuli gera í Spring Break.
þriðjudagur, janúar 18
ennui = dissatisfaction and restlessness resulting from boredome or apathy erudite = very learned, scholarly (lærður) truculent = fierce and cruel gregarious = sociable, outgoing, enjoying the company of other people penurious = penny-pinching, excessively thrifty Þetta eru nokkur orð sem ég er að reyna að læra og ákvað að deila þeim með ykkur. Síðan eiga náttúrulega ekkert af þessum orðum eftir að koma upp á prófinu en það er allt annað mál. Bara ef ég hefði farið í the erudite school sem er að sjálfsögðu eina alvöru menntastofnunin heima. Þá kynni ég þetta örugglega. Önnur mál á dagskrá er þessi skelfilega kuldi hérna. Mínus 7 gráður úti núna að hádegi. Þetta er ekki hægt. Gæti snjóað yfir helgina. Eins gott að það snjói þá á sunnudagskvöldi þannig að þeir gefi frí í skólanum á mánudegi.
sunnudagur, janúar 16
Ég tek til baka allt tal um að flíspeysan sé ekki að nauðsynleg hérna. Það er orðið skítkalt hérna og Íslendingurinn búinn að ná sér í kvef. Frí í skólanum á morgun. Ekki kvarta ég. Ég þarf að fara að læra fyrir GRE prófið (inntökupróf fyrir framhaldsnám) sem ég ætla að taka á næsta laugardag. Enski orðaforðinn sem ég þarf að læra fyrir það próf er ekki sá auðveldasti. Kannski ég komi með nokkur stikkorð úr bókinni hér á síðunni. Best að fara að koma sér á bókasafnið núna svo ég komi einhverju í verk í dag. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|