
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
miðvikudagur, febrúar 9
Duke vann UNC í kvöld 71-70 í hörkuspennandi leik. Síðustu sekúndurnar voru rosalegar þar sem UNC var með boltann þegar 18 sekúndur voru eftir en á einhvern ótrúlegan hátt náðu þeir að klúðra sókninni þannig að þeir náðu ekki einu sinni skoti að körfunni. Fögnuðurinn var gríðarlegur og eins og venjan er þá var kveikt í flestum af bekkjum skólans á miðjum campusnum. Við fórum nokkrir strákarnir og náðum í einn bekk frekar langt í burtu og hentum upp á trukkinn hans Yaw. Við bárum hann síðan inn á campusinn en vorum þar stoppaðir af löggunni og þurftum að setja hann niður. Ég lét mig hverfa um leið þar sem ef þeim hefði dottið í hug að láta okkur fara með hann til baka þá nennti ég því engan veginn. Slökkvuliðið slökkti síðan á brennunni alltof snemma en svona er nú bara Duke. Frekar stíft lið. Enga að síður gott kvöld og þessi leikur var góð upphitun fyrir föstudaginn þegar ég fer til Charlotte að horfa á Bobcats spila við Miami Heat. Mikil stemmning hér á Duke-campusnum í dag. Annar af stærstu leikjum ársins í körfunni er í kvöld, þ.e. Duke-UNC hér í Gotneska Undralandinu. Hinn stóri leikurinn er útileikurinn gegn UNC. Það er loksins komið að því sem stúdentarnir sem hafa búið í tjöldum síðustu 4 vikur var að bíða eftir. Raðir byrjuðu að myndast í gærdag fyrir utan íþróttahöllina til þess að fá það sem eftir er af miðum. Til að skemmta því liði þá voru tónleikar þar og mikið stuð í blíðskaparveðri. Ég sleppti því nú að taka þátt í þessu enda svo maður þýði nú beint yfir á íslensku ''of svalur fyrir skóla'' :) Í fyrsta skipti síðan ég hef verið hérna er UNC talið líklegra til afreka í leiknum og Duke því svokallaðir undir-hundar :) Það yrði því þeim mun sætara að vinna þennan leik í kvöld. Ég kveð að sinni.
sunnudagur, febrúar 6
Patriots unnu Superbowl og Chelsea tapaði loks stigum. Þetta eru allt góð úrslit. Ég horfði á allan leikinn (þ.e. Superbowl) í kvöld og hann var nú bara nokkuð góður. Þetta var orðið spennandi í lokin en síðan misstu Eagles boltann þegar lítið var eftir og eftir það var þetta búið. Ég fann þessa vefsíðu sem hefur eitthvað af auglýsingunum sem voru sýndar. Það eru nokkrar góðar þarna og mæli ég með Ameriquest-Robbed og Bud Light-Sharing. Alveg þess virði að fara í gegnum þær allar. Helgin er búin að vera nokkuð viðburðarík. Antoine og Daniel ákváðu að halda partý á föstudaginn og var flestum alþjóðastúdentum skólans boðið og öðrum vel völdum gestum. Eftir hæga byrjun, þar sem fólk var ekkert að drífa sig í að mæta á staðinn, þá stefndi allt í hörkupartý. Búið var að fá lánaða hátalara sem voru náttúrulega alltof háværir fyrir þessa litlu íbúð sem gleðskapurinn var haldinn í og það gat nánast bara endað á einn veg. Klukkan 1 bankaði löggan uppá og endaði stuðið. Það höfðu borist kvartanir frá nágrönnum en það gleymdist að tala við nokkra af þeim. Það var greinilega ekki mikið að gera í Durham þetta kvöld þar sem það mættu 4 löggur á staðinn og skipuðu okkur að slökkva á tónlistinni. Þannig endaði nú það kvöld. Á laugardeginum var farið út að borða til að fagna afmæli Elizu. Hún hafði valið að fara á tælanskan stað sem hún hafði heyrt að væri góður. Það hafði bara gleymst að segja henni að þetta væri meira svona skyndibitastaðurinn heldur en eitthvað annað. Hún var ekki ánægð með það og vildi fara eitthvað annað. Ég kom þá með þá snilldarhugmynd að kíkja á brasilískan veitingastað sem er nýopnaður. Hugmyndin náði meiri hluta atkvæða og var því stefnan sett þangað . Staðurinn er náttúrulega himnaríki fyrir þá sem finnst gott að borða nóg af kjöti (ætli ég flokkist ekki undir þann hóp). Hann virkar þannig fyrir sig að þú sest niður og nærði þér í grænmeti og kartölfur og síðan ganga starfsmenn um með 15 mismunandi kjöttegundir á spjótum og ef þér líst vel á þá veifarðu þeim til þín og þeir mæta galvaskir og skera fyrir þig sneið. Við sátum og borðuðum í svona tvo og hálfan tíma (sumir meira en aðrir) þannig að ég held að það þurfi að kíkja aðeins í gym-ið í dag. Í kvöld er síðan Super-Bowl. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|