Victor
Mættur aftur til USA
fimmtudagur, febrúar 17

Ég hef reynt að njóta síðasta dagsins sem ég get gengið eðlilega í 6 vikur til hins ítrasta. Ég þurfti að stússast í ýmsu sem verður leiðinlegra að gera á hækjum. Margt sem þurfti að mixast. Ég held að ég sé nokkuð tilbúinn núna.
Var að enda við að koma úr Blockbuster með slatta af DVD. Kíkti líka í Kroger til þess að ná í gos og snakk þannig ég er vel settur. Það er ágætt að heimsendingarþjónustan á mat er mjög öflug hérna. Mikið úrval þannig að ég fór út í banka og náði mér í fullt af singlum til þess að borga þjórféð.
Búinn að tala við alla prófessora og ég þarf ekkert að mæta í tíma fyrr en ég vil, spurning hvenær það verður :) 2 af 4 tímum eru stór hópverkefni þannig að ég hugsa að hinir í hópnum hafi bara meira að gera á næstunni.
Ég get því ekki betur séð en að næstu vikur verði bara nokkuð ljúfar :)

posted at 3:10 e.h. by Victor

|

þriðjudagur, febrúar 15

Ég hitti loks lækni sem skoðaði á mér hnéð í síðustu viku. Ég bjóst við að fá þær fréttir að ég þyrfti að fara í speglun sem yrði ekkert stórmál þar sem ég hef farið í þær nokkrar. Læknirinn kom hins vegar inn og sagði mér að liðþófinn væri í góðu lagi (góðar fréttir hefði maður haldið). Hann sagði hins vegar því miður að það væri komið ansi gott gat í brjóskinu sem þyrfti að laga ef ég hefði áhuga á því að ganga eðlilega þegar ég verð þrítugur. Þar sem ég hef mikinn áhuga á því þá féllst ég á það. Hann tjáði mér að ég yrði að vera mjög varkár ef þeir gera þessa aðgerð og yrði á hækjum í 6 vikur. Ég áttaði mig ekki alveg á þessu í fyrstu og fannst 6 vikur ekkert stórmál. Það rann hins vegar upp fyrir mér þegar ég var kominn heim að ef ég er 6 vikur á hækjum þá er ég varla í lagi eftir það. Það var líka alveg rétt og eftir 6 vikur byrjar endurhæfingin og fullur bati næst víst ekki fyrr en eftir 4-5 mánuði. 4-5 mánuði, er þetta ekkert grín. Það er ekki fyrr en í júlí sem ég verð góður. Ég á enn bágt með að trúa þessu. Ég fer í aðgerðina núna á föstudaginn. Ég fæ einhverja stóra vél hingað í íbúðina sem ég verð að hafa löppina í, í 6-8 klukkutíma á dag fyrstu 4 vikurnar til þess að halda einhverju af hreyfigetunni þar sem ég má ekki stíga í löppina fyrr en í einhvern tímann í apríl aftur. (Spring Break í rústi)

Það sem verður gert er svokallað Microfracture og Dr. Higgins félagi minn (búinn að hitta hann alltof oft) sér um þetta.

Það er ágætt að það sem liðið er af þessari önn er búið að vera skemmtilegt. Ég ákvað því að setja eitthvað af þeim myndum sem ég hef tekið á þessari önn á netið. Ég ætla að vona að síðan sé ekki of lengi að hlaðast.

posted at 6:36 e.h. by Victor

|

sunnudagur, febrúar 13

Þá er ég kominn aftur til Durham eftir velheppnaða ferð til Charlotte. Við fórum sex og var það svona að mestu leyti sama lið og venjulega. Við lögðum af stað upp úr hádegi á föstudaginn og vorum kominn til Charlotte rétt fyrir 4. Stefnan var alltaf sett á að skoða borgina aðeins en þegar við komum þangað þá áttuðum við okkur á því að hótelið okkar og íþróttahöllin voru talsvert fyrir utan borgina og því slepptum við því. Við vildum ekki vera of sein á leikinn.

Þegar við komum inn voru liðin byrjuð að hita upp. Við fengum ótrúlega góð sæti eða beint fyrir aftan blaðamennina, þ.e. í annarri röð, og því ekki hægt að kvarta yfir sætunum. Ég þakka Dainu fyrir að hafa reddað þessu. Ég hef nú ekki mikið fylgst með NBA síðustu árin þannig að ég var bara mættur til þess að horfa á Shaq enda hann lang stærsta stjarnan þarna. Charlotte Bobcats voru nú með nokkra ágætis leikmenn, þar á meðal Emeka Okafor sem rúllaði Duke upp í fyrra þegar hann spilaði með UConn. En þeir voru ekki með neinn leikmann sem gat ráðið við Shaq enda maðurinn ótrúlega stór og mikill. Nánast ósanngjarnt að sjá aðra reyna að dekka hann. Miami Heat vann leikinn en hann var þó nokkuð spennandi allan tímann. Við létum síðan taka mynd af okkur eftir leikinn.

posted at 9:46 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast