Victor
Mættur aftur til USA
fimmtudagur, mars 10

Það er orðið svolítið langt síðan ég lét síðast í mér heyra og margt hefur gerst síðan þá. Eftir að hafa skilað tveimur stórum verkefnum á mánudaginn þá fóru meira spennadi hlutir að gerast. Ég og Daniel keyptum okkur miða til San Fransisco og er stefnan sett þangað 20 apríl. Þar er strákur sem heitir Slav sem ætlar að taka á móti okkur og hýsa okkur þar til 24. apríl. Slav var í Duke fyrir 2 árum en er nú að stúdera í Berkely.
Þar sem ég var byrjaður að kaupa flugmiða þá keypti ég bara líka miða til New York 16. maí fyrir alla fjölskylduna eftir útskriftina hjá mér. Náttúrulega ekki allt á minn kostnað :) Á þriðjudeginum fór ég og Daniel og sóttum Ófeig til Virginia Tech og var það 7 tíma ferðalag og smá undirbúningur fyrir komandi ferðalög.

Þar sem það var bara eitthvað skemmtilegt búið að gerast þá hlaut að koma að einhverju miður skemmtilegu. Ég hitti lækninn á miðvikudaginn og það var ekkert hægt að díla við hann. 3 vikur í viðbóð á hækjum og þar fór draumurinn minn um að vera kannski bara á einni hækju í Miami. Enginn þungi á löppina sagði hann. Svona má ég fara að labba en enginn hlaup fyrr en eftir 4 mánuði frá aðgerð, þ.e. um miðjan júní. Ekki alveg það sem ég vildi heyra en svona er þetta bara.

En í framhaldi af samtali mínu við Higgins (læknirinn) þá fékk ég email frá nokkrum vinum hérna. Þau vildu endilega fara í sumarbústað í sveit Norður-Karólínu áður en önnin endar. Það eru allir að reyna að uppgötva fylkið núna áður en við klárum þar sem flestir hafa gert lítið af því og ólíklegt að maður eigi leið hérna í gegn eftir að skóla líkur. Það var því ákveðið að drífa í þessu og var helgin 1. og 2. apríl fyrir valinu. Mér líst mjög vel á þetta. Bústaðurinn sem við verðum í verður ekki amarlegur en hér má sjá svipaðan bústað og svo nokkrar myndir af náttúrunni í kring. Staðsetning er í Asheville, Norður-Karólínu en þar er meðal annars Biltmore Estate sem er að ég held stærsta ''einbýlishús'' í Bandaríkjunum. Ég er strax farinn að hlakka til fyrir þessa ferð en fyrst er það Spring Break sem hefst á morgun. Ferðinni er heitið til Miami og verður Road trip dauðans á morgun og er eins gott að hafa nóg af tónlist. Þetta eru einhverjar 82o mílur sem verða teknar samfleytt og er áætlaður aksturstími 13 og hálf klukkustund. Hér má sjá leiðina. Niðri í Miami gistum við í heimahúsi (held að þetta sé reyndar sumarhús þeirra) hjá einum strák sem er hér í Duke. Við verðum eitthvað í kringum 14 manns þarna þannig að stemmningin ætti að vera í lagi. Svo er ein stelpa sem við þekkjum hérna í Duke búinn að koma okkur inn á gestalistann á einum af heitari klúbbum Miami og ætti það að vera nokkuð svalt.

Það er sem sagt nóg að gera næstu vikurnar en ætli ég verði ekki drífa mig í svefninn svo ég hafi einhverja orku í morgundaginn

posted at 10:43 e.h. by Victor

|

sunnudagur, mars 6

Ótrúlega tilviljanakenndur dagur í dag. Við ákváðum nokkrir krakkar hér að hittast í hádegismat þar sem veðrið er farið að vera nokkuð gott og gaman að sitja úti í sólinni og slaka á. Ég hef frekar mikið að gera þessa dagana þar sem það þarf að skila tveimur stórum verkefnum á mánudaginn þannig að ég ætlaði nú ekki að eyða of miklum tíma í eitthvað rugl. Síðan kom einhver með þá hugmynd að við ættum að fara í dýragarð Norður Karólínu. Öllum fannst þetta nú æðisleg hugmynd og ég var ekkert á móti þessu. Það versta við þetta er að dýragarðurinn er í litlum bæ sem heitir Ashboro sem er u.þ.b. einn og hálfan tíma frá Durham. Ég gat ekki sagt nei við því að fara í smá roadtrip og komast frá Durham. Lærdómur laugardagsins fór því fyrir lítið. Við vorum síðan ekki mætt fyrr en klukkan hálf fjögur og lokaði staðnum klukkan fjögur. Það var því ákveðið að hlaupa í gegnum garðinn og fundu þau hjólastól fyrir mig. Við fórum allan hringinn á rétt rúmum hálftíma sem er ekki slæmt afrek.

Við ákváðum síðan að fara að fá okkur kvöldmat. Þegar við keyrðum um nágrennið sáum við afhverju Durham er kölluð borg hérna. Þetta var ótrúlega sorglegur staður. Við fórum inn á veitingastað og komust að því að við vorum mætt í biblíubeltið og þetta var dry county. Ekkert áfengi selt en staðurinn samt með bar fullan af sweet tea. Við keyrðum svo að lokum tilbaka og ég sé fram á langan sunnudag en það er alveg þess virði þar sem þessi ferð var vel heppnuð.

Eina slæma við þenna dag var að ManUtd gerði jafntefli og Chelsea vann.

posted at 12:09 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast