Victor
Mættur aftur til USA
föstudagur, apríl 15

Senior vikan er nú senn á enda. Senior vika er vika þar sem reynt er að skipaleggja ýmsa atburði fyrir okkur sem eru að klára. Reynt er að lokka nemendur til að vera þátttakendur með þvi að gefa ýmist frían mat, frían bjór eða fría boli. Bak við allt þetta liggur stærri ástæða en það er að fá nemendur til þess að gefa peninga til skólans í von um að við komum til með að gera það á hverju ári um ókomna tíð. Áróðurinn er að skólagjöld ná aðeins yfir 50% af útgjöldum skólans og hitt þarf að koma í styrkjum og við sem höfum nú klárað skólann og fengið að njóta alls þess sem hann hefur upp á að bjóða eigum nú að gefa eitthvað tilbaka. Forsetinn okkar, Dicky Broadhead bauð okkur í mat á miðvikudaginn og hamraði á þessu. Þar sem við erum Class of 2005 þá er senior gjöfin okkar $20.05. Ég ákvað að þar sem ég hef nú ekki gefið skólanum neitt að ég gæti nú séð af 20 dollurum. Markmið okkar árgangs er að ná 100% þátttöku.
Senior vikunni lýkur svo á laugardagskvöldi en við fáum tjald hliðin á öllum reunion-tjöldunum þar sem boðið verður upp á veitingar o.fl. Útaf reunion þá er skólinn að fyllast af gömulum Dukies.
Laugardagskvöldið ætti að geta verið nokkuð skemmtilegt og það verður kærkomið fyrir mig eftir leiðinlega dag þar sem ég er að fara í 8 tíma verkfræðipróf á laugardeginum. Prófið sem ég er að fara í er svokallað Fundamentals Exam sem er fyrsta skrefið í þá átt að verða Professional Engineer.
Svona rétt í lokin langað mig til að sýna fólki boð í partý sem ég var að fá rétt í þessu. Miðað við vinnuna sem strákurinn lagði í þetta þá held ég að maður verði alla vega að kíkja til hans.

posted at 8:41 f.h. by Victor

|

fimmtudagur, apríl 14

Já, þær eru loksins komnar í hús myndirnar frá síðustu helgi. Daniel og Antoine héldu partý á laugardaginn. Bæði vegna til þess að fagna því að Antoine átti afmæli og einnig vegna þess að Slav var í heimsókn frá Berkley en hann var skiptinemi hérna annað árið mitt. Stuðið byrjaði svona rólega eins og oft vill verða en smám saman lífgaðist þetta við or er varla hægt að komast hjá því að taka eftir því hér. Síðan hægt og rólega fór fólk bara alveg að missa sig og áður en ég vissi var fólk komið upp á borð að dansa og ekki bara við heldur þær líka. Já, stemmningin var gríðarleg og fór Slav ánægður til Kaliforníu aftur eftir skemmtilega helgi hér í miðborg skemmtanalífsins, þ.e. Durham, N.C.

posted at 12:53 f.h. by Victor

|

sunnudagur, apríl 10

Það er farið að skjóta fast á mann fyrir að vera of latur að uppfæra síðuna. Ég get alveg viðurkennt að ég hef ekki verið sá duglegasti að skrifa hér inn og þegar ég geri það þá er það yfirleitt í flýti. Ég tel hins vegar full gróft að Kappinn sé að gagnrýna eitthvað þar sem það líða heilu vikurnar án þess að það heyrist eitthvað í honum. Þegar það svo loks gerist þá er það svo langt að maður nennir ekki að lesa það :)

Ég vildi að ég gæti sagt að ég hefði ekkert skrifað þar sem ég er alltaf úti í sólinni að slaka á en það væri ekki alveg satt. Það er búið að vera alveg nóg að gera. Ég er í 3 hópverkefnum sem taka endalausan tíma. Svo er ég líka að skrifa ritgerð um verkefni sem ég gerði hérna og þarf að halda fyrirlestur um það eftir 2 vikur. Smá stress yfir því sérstaklega þar sem það gengur ekki allt upp og prófessorinn sem ég er að vinna með hefur alltof mikið að gera. Mitt verkefni ergreinilega ekki forgangsatriði fyrir hann. Á fyrirlestrinum verða allir prófessorarnir í deildinni á staðnum þannig að það er eins gott að kunna þetta vel.

Svona til að friða lesendur þá skellti ég myndunum frá sumarbústaðnum á netið. Antoine átti afmæli í vikunni og hann hélt partý í gærkvöldi sem var vel heppnað. Hver veit nema að ég setji nokkrar myndir af því þegar líður á vikuna en þetta er hins vegar sama lið og venjulega þannig að kannski ekkert nýtt að skoða. Það er eiginlega búið að halda þrisvar uppá afmælið hans. Fyrst að miðnætti á miðvikudagskvöldinu fórum við á James Joyce. Afmælismaturinn var á fimmtudeginum á frönskum stað hérna (Antoine er franskur) sem var gjörsamlega misheppnaður og svo partýið gær sem var líka bara til að halda eitt lokapartý áður en allir fara í sitthvora áttina.

Í dag fór ég svo í grillveislu. Það voru prinsessurnar af Katar sem buðu fullt af krökkum heim til sín. Þau búa ekki beint þessu háskólalífi líkt of flestir aðrir. Risahús í mjög flottu hverfi. Að sjálfsögðu þjónustufólk. Gaman að fá smá mynd af því hvernig konungborið fólk lifir. Þetta er á endanum bara venjulegt lið og eru systurnar mjög fínar báðar. Að mörgu leyti missa þau af háskólastemmningunni þar sem þau eru töluvert einangruð.

Jæja, ég held að þetta sé nóg í bili. Bókasafnið bíður. Ég reyndi vanda mig í þetta skiptið þannig að vonandi eru ögn færri villur í textanum í dag heldur en venjulega.

posted at 1:38 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast