Victor
Mættur aftur til USA
þriðjudagur, maí 24

Það er orðið langt síðan að ég uppfærði þessa síðu þannig að ég tel að það sé kominn tími á það. Margt merkilegt hefur gerst á síðustu dögum og vikum. Fyrst ber að nefna að ég útskrifaðist og telst því nú Duke Alumni. Mamma, pabbi, Ófi, Bjössi og María mættu öll til að fylgjast með þessum merkisatburði í blíðskaparveðri á fótboltavellinum okkar í Duke. Athöfnin var svo sem ósköp hefðbundin og fór vel fram. Forseti Chile, var aðalræðumaður og var hún stutt og kjarnyrt sem er alltaf kostur þegar kemur að ræðum. Að útskrift lokinni kvaddi maður þá sem maður rakst á og því næst var lokið við að pakka og koma öllu í bílinn. Áður en ég kvaddi Durham þá kíkti ég í útskriftarveislu sem prinsessan af Katar hélt. Ég bjóst við svona venjulegu boði en ég hefði átti að vita betur þegar um er að ræða konungborið fólk. Foreldrar hennar voru mættir og með þeim alla vega tveir tugir öryggisvarða. Þegar við ókum í hlað þá lét ég einhvern bara fá lykilinn af bílnum og hann sá um að leggja honum. Ég hefði kannski átt að mæta Geo-num, bara til að sjá svipinn á liðinu :) Forseti Duke var mættur á staðinn og spjallaði ég aðeins við kallinn og heilsaði síðan Emírnum af Katar og konu hans. Veislan var úti í garði en þau höfðu lagt gler yfir sundlaugina hjá sér og þar ofan á persneskt teppi og svo tjald yfir. Þetta var með ólíkindum glæsilegt og matur algjört lostæti. Gestir voru svo leystir út með gjöfum eins og vera ber.
Fjölskyldan fór síðan öll saman á hótel fyrir utan Durham þar sem við gistum síðustu nóttina í Norður-Karólínu. Daginn eftir var svo flogið til New York og svona til að hafa þá sögu stutta þá ætla ég bara að minnast á það sem stóð mest uppúr þeirri ferð. Það voru að sjálfsögðu U2 tónleikarnir sem voru alveg hreint magnaðir. Stemmningin í höllinni var ótrúlega skemmtileg og þeir stóðu sig vel og héltu uppi stuði allan tímann. Ég mæli með þeim.
Ég stefni á því að skrifa svona af og til á síðuna í framtíðinni þó að ég muni ekki hafa neinar sögur af utan að segja lengur. Ég smelli síðan síðustu Duke myndunum á netið von bráðar.

posted at 3:31 e.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast