Victor
Mættur aftur til USA
mánudagur, apríl 2

Strákurinn er mættur aftur til Kaliforníu. Vorfríið því búið og ný önn að taka við. Ég nýtti fríið til þess að reyna að finna eitthvað að gera er ég klára hér. Ég flaug til Betlehem (í Pennsylvania ekki í Mið-Austurlöndum) á mánudaginn síðasta og tók þaðan rútuna til New York. Af hverju ég flaug til Betlhem útskýri ég seinna. Í New York fékk ég að gista hjá Duke vini mínum Antoine. Hann er þessa dagana að bíða eftir því að klára 2 ára þrældóm hjá Cityigroup. Hann hætti snemma á mánudagskvöldi, þ.e. uppúr hálf tíu, til þess að við gætum hist og fengið okkur einn kaldann saman. Hann ætlar nú reyndar að verðlauna sjálfan sig þegar samningnum hans líkur og ferðast um heiminn í 4-5 mánuði þannig að hann ætti að ná að vinna upp tapaðan frítíma þar. Í New York fór ég svo í tvö starfsviðtöl. Það fyrra var hjá Weidlinger Associates og það seinna hjá Severud Associates. Þau gengu bara nokkuð vel en ég vænti að heyra frá þeim í lok vikunnar. Viðtalið við Weidlinger var strembnara enda þurfti ég endalaust að tala við nýja starfsmenn og reyna að sannfæra þá um ágæti mitt. Gaurinn hjá Severud var meira að kynna fyrirtækið fyrir mér og ég hlustaði bara og kinkaði kolli. Í New York hitti ég einnig Íslandsvininn og Duke-arann Finch sem flestir lesendur ættu að kannast við. Allt gott af honum að frétta. Hann vinnur nú á Manhattan hjá Civil Rights Organization og líkar bara vel. Eftir að viðtölunum lauk tók ég rútuna tilbaka til Betlehem. Þar fór ég í viðtal við Lehigh University varðandi hugsanlegt doktorsnám. Þeir voru svo vænir að borga flugið og því flaug ég þangað en ekki til New York sem hefði eflaust verið auðveldara. Lehigh kom betur út en ég hafði þorað að vona. Ég vissi þannig séð lítið um skólann fyrir ferðina annað en að prófessor hér í Stanford hafði mælt með þeim. Rétt hjá Lehigh býr svo enn einn Duke vinurinn, hún Minti, og tók hún mig út að borða reyndi að sannfæra mig um að koma þangað. Ég flaug svo heim á föstudagsmorgni og hef verið að slaka á hér síðan þá.

Varðandi heimsókn mína til Seattle þá verð ég að biðjast velvirðingar minnar á því að það virðist ekkert ætla að verða úr henni. Sorry Tumi. Hann Brian hjá MKA var bara ekkert að standa sig. MKA, sem er verkfræðistofa í Seattle, var búið að bjóða mér í heimsókn til þeirra. Ég var búinn að segja þeim að ég hefði áhuga á því en svo heyrðist ekkert í þeim aftur. Þremur vikum síðar sendi ég aftur email á þá og sagðist enn hafa áhuga þrátt fyrir dissið (enda á ég ekki efni á öðru enn sem komið er) en núna eru aðrar þrjár vikur liðnar, ekkert hefur heyrst í þeim og ég því búinn að gefa þá upp á bátinn.

posted at 12:01 f.h. by Victor

|


Um mig

Victor Knútur Victorsson

Stanford University
vkv@stanford.edu
victorkv@msn.com
United States
Palo Alto, CA
Sí­mi: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting              001-650-804-6589      end_of_the_skype_highlighting


Núna er mjög ólíklegt
að ég sjáist á
James Joyce

en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum:

Alexander Valley Vineyards
Jordan Winery
Stryker Sonoma
Bella Vineyards
Silver Oak Cellars
Michelle Schlumberger
St. Francis
Stags Leap
Robert Mondavi
Benziger
Joseph Phelps
Kunde
Ferrari-Carano
Raymond Burr
Geyser Peak
Darioush
Chandon
Rubicon Estate
Grgich Estate
Valley of the Moon
Sbragia Family Vineyards
Papapietro Perry
Seghesio
Quivira
Ridge
Preston
Pedroncelli
Frank Family Vineyards
Gundlach-Bundschu
Gloria Ferrer
Opus One
A Rafanelli
Williamson
Louis Martini
Whitehall Lane
Lancaster
Amista
Korbel
Arista
Freestone
Ironhorse
Merry Edwards
PlumpJack
Bremer Family
Ladera

Thomas Fogarty
Picchetti

eða á eftirfarandi veitingastöðum:

Bistro Aix
(21-22-21)
Le Colonial
(22-21-21)
Hyde Street Bistro
(24-23-24)
Kuletos
(20-21-22)
Aziza
(23-19-22)
Puccini & Pinetti
(18-17-19)
Cortez
(20-22-22)
SPQR
(16-18-18)
Zingari
(23-22-24)
Slanted Door
(27-23-24)
Universal Cafe
(21-19-23)
Maverick
(22-21-22)
Garcon
(21-19-20)
Bong Su
(23-22-23)
Hime
(21-20-20)
Piperade
(23-24-21)
Conduit
(25-22-21)
Zuni Cafe
(19-22-20)
Greens
(23-23-22)
Range
(23-22-23)
Mission Beach Cafe
(23-24-24)
Fringale
(25-23-23)
Chaya
(21-23-20)
Chapeau
(26-22-23)
Firefly
(22-21-23)
Albona Ristorante
(20-21-23)
Brindisi
(19-19-19)
Destino
(20-21-21)
Butterfly
(22-23-22)
Zushi Puzzle
(26-14-16)
Chez Spencer
(24-25-23)
Seasons
(26-26-27)
Bacar
(23-22-21)

Chez Panisse
(28-28-28)
Cesar
(23-23-22)
Vanessa´s Bistro
(23-20-20)
La Note
(22-19-17)
Citron
(22-20-19)
Kenwood
(24-23-23)
Glen Ellen Inn
(21-22-21)
Osteria
(19-19-19)
Siam Royal
(18-15-16)
La Strada
(15-18-17)
Kanpai
(23-20-21)
Fuki Sushi
(24-20-21)
Evvia
(25-24-23)
Tamarine
(25-24-22)
Bistro Elan
(24-23-24)

Nobu Las Vegas
(27-23-23)

Nokkrir skemmtistaðir í SF:

Ruby Skye
Matrix
Medjool
Levende
Wish
Redwood Room
Starlight Room
Kelly Mission Rock
Mighty
Fluid
Pink
Supper Club
Cat Club
Shine
XYZ
ROE
Vessel
Atmosphere
Harlat
Monk´s Kettle


Ýmislegt

Morgunblaðið
MYNDIR
Victor Vagn og Orri Fannar
batman.is
Staðan í leikjum
soccernet
fotbolti.net
Einfaldlega bestir
Nýja stórveldið
Gestabók


Gamlar fréttir

Gamalt
Heim


Blogg sem ég kíki á¡

Ófinn
Ítalski Kappinn
Gauti í­ New Mexico
Silja og Vignir
Tumi
Biggi í­ Virginia Tech
Jónas
Danajarlinn
Marí­a
Egill Atla
Vinabandalagið
Yfirflokksstjórinn
Jón í­ Hannover
Rakel Loga
Gummi Dan
Lapasinn
HK-ingar

Click for Durham, North Carolina Forecast