
| Victor |
| Mættur aftur til USA |
|
fimmtudagur, febrúar 21
Það er búið að vera nóg að gera hér síðustu daga en miðannarprófum er nú lokið og því aðeins rólegri dagar framunda. Það hefur nú samt ekki verið svo slæmt að ég hafi ekki getað komist í vínsmökkun í Sonoma á sunnudaginn. Það viðraði svo vel að ég og Slav sáum okkur ekki fært um að eyða svona góðum degi inni og brunuðum norður. Í þetta skiptið stoppuðum við hjá Michel-Schlumberger og Ferrari-Carano. Þetta eru tveir mjög ólíkir staðir en báðir með mjög góð vín. Michel-Schlumberger, þar sem ég er í vínklúbbi er minni um sig og ekki jafn mikið stílar inn á túrisma á meðan Ferrari-Carano er akkúrat í hina áttina. Hjá Schlumberger var mér tekið sem vini og fékk að smakka góðu vínin þeirra á meðan við sátum úti í garði hjá þeim.....hmmmm. Hjá Ferrari-Carano vorum svo ótrúlega heppnir með afgreiðslumann sem var mjög hress og fús að spjalla. Hann er sjálfur að rækta ber og selja til vínbúanna. Hann á land uppi í hlíðunum í Sonoma og leigir út hús þar til ferðamanna. Hann gaf mér nafnspjaldið sitt og ég lofaði að skoða heimasíðuna hans. Mér sýnist á síðunni að þetta gæti verið ótrúlega skemmtilegur valkostur ef fólk er á annað borð að spá í að gista þarna í nokkra daga. Við enduðum svo daginn á því að kíkja í leikhús. Vinkona hans Slav er að reyna að slá í gegn og er með hlutverk í litlu leikriti, American Triage, sem var verið að sýna rétt fyrir norðan San Francisco. Leikritið var mun betra en ég bjóst við og leikaranir stóðu sig vel. Það var óvæntur bónus í lokin á góðum degi. Vikan fram til þess hefur svo mest megnis farið í vinnu. Engin stór plön komin fyrir helgina en vonandi dettur eitthvað inn. |
Um mig Victor Knútur Victorsson Stanford University vkv@stanford.edu victorkv@msn.com United States Palo Alto, CA Sími: 001-650-804-6589 begin_of_the_skype_highlighting 001-650-804-6589 end_of_the_skype_highlighting Núna er mjög ólíklegt að ég sjáist á James Joyce en líklegra er að finna mig á eftirfarandi stöðum: Alexander Valley Vineyards Jordan Winery Stryker Sonoma Bella Vineyards Silver Oak Cellars Michelle Schlumberger St. Francis Stags Leap Robert Mondavi Benziger Joseph Phelps Kunde Ferrari-Carano Raymond Burr Geyser Peak Darioush Chandon Rubicon Estate Grgich Estate Valley of the Moon Sbragia Family Vineyards Papapietro Perry Seghesio Quivira Ridge Preston Pedroncelli Frank Family Vineyards Gundlach-Bundschu Gloria Ferrer Opus One A Rafanelli Williamson Louis Martini Whitehall Lane Lancaster Amista Korbel Arista Freestone Ironhorse Merry Edwards PlumpJack Bremer Family Ladera Thomas Fogarty Picchetti eða á eftirfarandi veitingastöðum: Bistro Aix (21-22-21) Le Colonial (22-21-21) Hyde Street Bistro (24-23-24) Kuletos (20-21-22) Aziza (23-19-22) Puccini & Pinetti (18-17-19) Cortez (20-22-22) SPQR (16-18-18) Zingari (23-22-24) Slanted Door (27-23-24) Universal Cafe (21-19-23) Maverick (22-21-22) Garcon (21-19-20) Bong Su (23-22-23) Hime (21-20-20) Piperade (23-24-21) Conduit (25-22-21) Zuni Cafe (19-22-20) Greens (23-23-22) Range (23-22-23) Mission Beach Cafe (23-24-24) Fringale (25-23-23) Chaya (21-23-20) Chapeau (26-22-23) Firefly (22-21-23) Albona Ristorante (20-21-23) Brindisi (19-19-19) Destino (20-21-21) Butterfly (22-23-22) Zushi Puzzle (26-14-16) Chez Spencer (24-25-23) Seasons (26-26-27) Bacar (23-22-21) Chez Panisse (28-28-28) Cesar (23-23-22) Vanessa´s Bistro (23-20-20) La Note (22-19-17) Citron (22-20-19) Kenwood (24-23-23) Glen Ellen Inn (21-22-21) Osteria (19-19-19) Siam Royal (18-15-16) La Strada (15-18-17) Kanpai (23-20-21) Fuki Sushi (24-20-21) Evvia (25-24-23) Tamarine (25-24-22) Bistro Elan (24-23-24) Nobu Las Vegas (27-23-23) Nokkrir skemmtistaðir í SF: Ruby Skye Matrix Medjool Levende Wish Redwood Room Starlight Room Kelly Mission Rock Mighty Fluid Pink Supper Club Cat Club Shine XYZ ROE Vessel Atmosphere Harlat Monk´s Kettle
Ýmislegt
Morgunblaðið MYNDIR Victor Vagn og Orri Fannar batman.is Staðan í leikjum soccernet fotbolti.net Einfaldlega bestir Nýja stórveldið Gestabók
Gamlar fréttir
Gamalt Heim
Blogg sem ég kíki á¡
Ófinn Ítalski Kappinn Gauti í New Mexico Silja og Vignir Tumi Biggi í Virginia Tech Jónas Danajarlinn María Egill Atla Vinabandalagið Yfirflokksstjórinn Jón í Hannover Rakel Loga Gummi Dan Lapasinn HK-ingar
|